Saga gífurviða
TRÉ VIKUNNAR - XCVIII
Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli sama daga til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _
Gífurviðir, Eucalyptus L'Hér., vaxa fyrst og fremst í Ástralíu. Þeir eru af mörgum taldir einkennistré þeirrar fjarlægju heimsálfu sem við köllum Eyjaálfu. Það kemur því eflaust mörgum á óvart að elstu menjar um ættkvíslina eru ekki þar að finna, heldur í Suður-Ameríku.
Sumir gífurviðir þurfa ekki mikinn jarðveg. Myndin er tekin í Central Tilba í Nýja-Suður-Veils í Ástralíu. Myndina tók Elena Greyson og birti á Facebooksíðunni Nuts about Gums. Óhætt er að mæla með þeirri síðu fyrir þá sem vilja skoða fleiri myndir af gífurviðum.
Upprifjun
Áður en lengra er haldið er rétt að rifja það upp að við köllum Eucalyptus ættkvíslina gífurviði. Svo skiptum við viðunum í tvo flokka eftir hæð og vexti. Annars vegar eru það hin stórvöxnu, einstofna tré og hins vegar runnar, sem geta í sumum tilfellum myndað margstofna tré. Þau fyrrnefndu köllum við gífurtré en hin síðarnefndu gífurrunna.
Útbreiðsla
Aðalútbreiðslusvæði ættkvíslarinnar er í Ástralíu, þar með talið í Tasmaníu og nálægum eyjum. Ættkvíslina má einnig finna í Suðaustur-Asíu en þar vaxa villt gífurtré eingöngu í regnskógum. Aðeins eru um tíu tegundir af þessum 700 sem ekki finnast í Eyjaálfu, en sumar af áströlsku tegundunum finnast einnig í Asíu. Gífurviðir eru svo algengir í Ástralíu að sagt er að á um þremur hlutum af hverjum fjórum þar í landi séu þeir lykiltré í sinni vist. Það er aðeins á allra þurrustu stöðunum og á hæstu fjöllum (sem eru reyndar ekki mjög mörg í Ástralíu) sem ekki finnast neinar tegundir af gífurtrjám eða -runnum. Engin önnur ættkvísl trjáa kemst nálægt henni hvað útbreiðslu í Eyjaálfu snertir. Samt er rétt að geta þess að þar vex einnig ótrúlegur fjöldi af akasíum. Þjóðarblóm Ástrala vex á akasíutegundinni Acacia pycnantha.