- Vikulega birtist pistillinn Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga. Akureyri.net birtir hluta hvers pistils í því skyni að vekja athygli á skrifunum.
Hin evrópska olía: Olea europaea L.
TRÉ VIKUNNAR - LXII
Almennt er álitið að mannkynið hafi stigið stórt skref á hinni félagslegu þróunarbraut þegar það breytti um lífstíl og hóf ræktun. Fram að því höfðu forfeður okkar verið safnarar og veiðimenn. Þeir flökkuðu um og átu það sem þeir fundu. Þegar þeir hófu ræktun gátu þeir tekið upp fasta búsetu og smám saman varð hvers kyns ræktun undirstaða stærsta hluta þeirrar næringar sem mannkynið innbyrðir. Ekki er vitað hvenær mannkynið tók upp á að rækta tré en sum þeirra hafa verið í ræktun frá ómunatíð. Einkum á það við um tré sem hægt er að nýta til matar á einn eða annan hátt. Eitt þeirra trjáa er tré vikunnar að þessu sinni. Það hefur verið ræktað allt í kringum Miðjarðarhafið svo lengi að það tengist órjúfanlegum böndum menningu og fæðu þeirra þjóða sem þar búa. Tré vikunnar er ólífutré. Jólapistill okkar fyrir jólin 2023 var um friðartáknið ólífu, en hér er sjónunum beint að trénu sjálfu og afurðum þess.
Ólífur, ólífugreinar, ólífuolía og ólífuviður. Myndin fengin héðan úr grein eftir Rachel Vadaj.
Lýsing
Ólífutré á Nýja-Sjálandi. Ólífur eru ræktaðar víða um heim þar sem loftslag hentar. Myndin fengin héðan en hana tók Trevor James.
Aldur
Þetta ólívutré, sem vex á Sardiníu, var vísast löngu farið að gefa ólífur þegar Jón Arason varð höfðinu styttri árið 1550. Myndin fengin héðan en hana tók Elia Fontana.
Svo eru til sagnir um mörg þúsund ára gömul ólífutré en erfitt er að færa sönnur á þær. Á eyjunni Krít er fullyrt að til séu ólífutré sem náð hafi ríflega 3000 ára aldri. Þau gefa enn af sér ljómandi fín aldin. Í Líbanon er sagt að til séu tvöfalt eldri ólífutré. Við drögum í efa að það geti staðist en getum ekkert fullyrt um það. Eins og þekkt er hjá sumum öðrum trjám, til dæmis ývið sem við höfum fjallað dálítið um, getur verið flókið að áætla aldur ólífutrjáa. Þar kemur einkum tvennt til. Í fyrsta lagi getur kjarnviðurinn rotnað og horfið þannig að ekki er hægt að telja árhringi gamalla trjáa. Í öðru lagi eiga ólífutré nokkuð auðvelt með að endurnýja sig ef stofninn verður fyrir skaða og drepst. Þá getur rótin lifað áfram og myndað nýjan stofn. Þá þarf fólk ekki að vera sammála um hvort um nýtt tré er að ræða eða ekki. Talið er að í tilfelli ólífutrjáa sé þetta aðlögun að skógareldum.
Þegar ólífutré verða gömul, segjum svona 100 ára eða meira, fara þau að breyta töluvert um vaxtarlag. Þau verða öll snúin og undin og mjög myndræn. Þá verða stundum til sögur um að þau séu miklu eldri en þau í raun eru.
Ólífutré á Krít sem sagt er að sé ríflega 3000 ára gamalt. Myndin er úr grein eftir Vilmund Hansen.
Laufin
Gagnstæð laufblöð og tvær ólífur á grein. Myndin fengin héðan.
Ólífutré eru sígræn. Þau þurfa samt að endurnýja laufblöð sín eins og önnur tré. Það gera þau smátt og smátt. Þegar gömul lauf falla vaxa ný í þeirra stað svo alltaf eru einhver blöð á trénu. Trén þurfa að passa vel upp á þann raka sem þeim tekst að ná í og þess vegna eru laufin á ólífutrjám fremur þykk, leðurkennd og hærð. Allt hjálpar það til við að vernda þann vökva sem tréð hefur haft fyrir að ná í. Hæringin getur að auki fangað vatn úr röku lofti sem kann að berast með þoku yfir vaxtarsvæðin þegar lítið annað vatn er að hafa. Þess vegna eru ólífulundir gjarnan nokkuð nærri sjó þar sem líklegra er að morgunþoka myndist. Þess má geta að laufin hafa lengi verið nýtt til lyfjagerðar. Það getur verið arðsöm aukabúgrein þótt trén séu fyrst og fremst ræktuð vegna aldinna. Ef einhver er að velta því fyrir sér hvernig laufin eru á litinn má geta þess að þau eru að sjálfsögðu ólífugræn.
Lauf og blóm ólífutrjáa. Myndin fengin héðan en hana tók Trevor James.
Viður
Smíðagripir úr ólífuviði. Myndin fengin héðan þar sem fræðast má meira um þennan við.
Aldin
Fullvaxin ólífutré geta gefið af sér milli 50 og 60 kíló af ólífum við góðar aðstæður. Þetta byrjar allt með því að lítil, hvít blóm myndast við laufstilkana og mynda þar sveipi. Þau birtast á vorin en trén eru ræktuð svo víða að vorið er ekki alveg á sama tíma á öllu ræktunarsvæðinu. Á Suður-Ítalíu gerist þetta í mars. Samkvæmt Popay (2016) hefst vöxtur trjánna ekki fyrr en lofthiti er kominn yfir 12°C. Þegar hitinn fer yfir 30°C dregur mjög úr vexti og þroska. Ef allt gengur eftir myndar hvert blóm steinaldin en það er fyrst og fremst vindurinn sem sér um frjóvgun trjánna. Utan um fræið (steininn) myndast olíuríkt hold. Það er grænt í fyrstu en dökknar og verður oftast svart þegar ólífurnar eru að fullu þroskaðar. Á Ítalíu er það um það bil í lok október. Uppskeran nær yfir lengri tíma því misjafnt er hvort ólífur eru tíndar þegar þær eru að fullu þroskaðar (svartar) eða hálfþroskaðar og grænar. Við Miðjarðarhafið eru grænar ólífur tíndar í lok september og fram í október en svartar frá nóvember og fram undir lok í janúar. Grænar og svartar ólífur sem við getum keypt í verslunum eru algerlega sama tegundin. Munurinn ræðst fyrst og fremst af því á hvaða þroskastigi þær eru tíndar. Þótt allar ólífurnar tilheyri sömu tegund er til ótrúlegur fjöldi ræktunaryrkja sem gefa af sér mismunandi ólífur. Sum þeirra henta best til olíuframleiðslu á meðan önnur eru nýtt til matar. Þeir sem gerst þekkja segjast geta greint í sundur yrki af bragðinu.
Heimkynni
Eldgamalt ólífutré í Portúgal. Myndin fengin af Facebooksíðunni Amazing Daily Nature.
Popay (2016) segir að trén þrífist ágætlega þótt sumrin verði bæði þurr og heit en þoli að auki fremur kalda vetrarmánuði. Það er sjálfsagt skilgreiningaratriði hvað við köllum kalda mánuði. Að minnsta kosti telja fæstir Íslendingar að við Miðjarðarhafið verði vetrarmánuðirnir sérlega kaldir. Samt sem áður verða ólífur að ganga í gegnum árstíðir til að þrífast. Þess vegna þrífast þær ekki of nálægt miðbaug þar sem aldrei kemur svöl árstíð. Samkvæmt áðurnefndum Popay (2016) þola trén frost sem getur farið niður í -8 til -12°C á vetrum. Á vorin getur frost skemmt blómgun og þar með eyðilagt alla uppskeru ársins.
Diana Wells (2010) segir frá því í sinni bók að ekki sé hægt að rækta ólífur þar sem of rakt er. Það reyndi þriðji forseti Bandaríkjanna, Thomas Jefferson með litlum árangri í Virginíu. Þar var nægilega heitt og sólríkt en of mikill raki og of lítill vetrarkuldi til að trén gætu þrifist með ágætum. Aftur á móti þrífast þær ljómandi vel í Kaliforníu þar sem loftslag hentar þeim prýðisvel. Það vissi Jefferson ekki (Wells 2010).
Víða í kringum Miðjarðarhafið má sjá að ólífulundir skipta miklu máli. Ekki bara vegna ávaxtanna sem við skulum þekkja þá af heldur vegna þess að þeir veita skjól fyrir sterku sólarljósi. Meðal þeirra má oft sjá ýmsar matjurtir ræktaðar handa þeim fjölskyldum sem eiga lífsviðurværi sitt að þakka þessum trjám (Tudge 2005).
Akrar af ólífum í kringum þorp. Myndin fengin héðan.
Nafnasúpa
Innan ólífuættkvíslarinnar, Olea spp. eru fáeinir tugir tegunda en heimildum ber ekki alveg saman um fjöldann. Þó eru heimildir sammála um að það sé bara ein þeirra sem ræktuð er vegna aldinanna. Hún heitir Olea europaea L. og það er hið eiginlega ólífutré. Viðurnefnið europaea merkir að tréð vaxi í Evrópu og vissulega eru ólífur ræktaðar um sunnanverða álfuna. Samt er heitið ekki mjög lýsandi því tréð er ræktað mun víðar og eins og við nefndum hér ofar er talið að upphaflegu heimkynnin séu annars staðar.
Eldgamalt ólífutré á Ítalíu. Kjarnviðurinn hefur rotnað í burtu svo erfitt er að fullyrða hversu gamalt það er. Mynd: @Donato Pinto. Myndin fengin héðan.
Til að flækja málið enn frekar er það hreint ekki þannig að öll aldin af Olea europaea séu það sem við lítum á sem venjulegar ólífur. Til að finna þær þurfum við að fara í það sem kallað er undirtegundir eða subspecies. Sagt er að undirtegundir ólífutrjáa séu sex talsins en sumir telja þær aðeins tvær (Popay 2016). Hvort heldur sem er heita hinar bragðgóðu ólífur O. europaea subsp. europaea. Það er undirtegundin sem upphaflega var fyrst ræktuð í Sýrlandi og Palestínu en er nú ræktuð allt í kringum Miðjarðarhafið.
Við getum kafað enn dýpra og fundið rétta afbrigðið. Það kallast: O. europaea subsp. europaea var. europaea. Það er afbrigðið sem ræktað er til að framleiða allar þær ólífur sem eru á boðstólum, bæði sem ólífur og ólífuolía. Af þessu afbrigði eru síðan til mýgrútur af yrkjum. Nú gætir þú, lesandi góður, spurt hvort virkilega sé þörf á allri þessari nafnarunu. Svarið við því ræðst af því hversu nákvæm við viljum vera. Svona lagað verður meðal annars til vegna þess hversu lengi ólífur hafa verið í ræktun. Til að flækja málið ekki um of fjöllum við ekki um allan þann aragrúa af yrkjum sem til eru í heiminum og gefa af sér mismunandi ólífur.
Innan tegundarinnar Olea europaea L. eru nokkrar undirtegundir eins og áður greinir. Ein þeirra er Olea europaea subsp. cuspidata. Talið er að sú undirtegund sé formóðir subsp. europaea. Svo eru til grasafræðingar sem hafa komið sér upp ljómandi skemmtilegu rifrildi um það hvort tegundin sjálf Olea europaea geti verið afkomandi O. africana eða O. ferruginea. Frá þessu er meðal annars sagt á heimasíðu World Flora Online. Ef við viljum forðast rugling er sennilega best að tala bara um ólífutré og láta þar við sitja. Ef þörf er á frekari lestri um ættfræði og nafnarugling má benda á þessa heimild.
Villt afbrigði af ólífutré. Það má skrá sem Olea europaea subsp. europaea var. sylvestris. Tréð er á Sardiníu og myndin er fengin héðan.
Orðsifjar
Ólífur í fljótandi ólífuolíu og framreiddar á brettum úr ólífuvið. Myndin fengin héðan.
Olía
Talið er að ræktun ólífutrjáa hafi hafist fyrir um 7000 árum og þá vegna olíunnar. Líklegt er talið að olíuframleiðslan hafi hafist enn fyrr, því stundum hafa steinar úr ólífum fundist í fornleifagreftri frá því 9000 árum fyrir upphaf okkar tímatals. Talið er að þeir hafi tilheyrt villtum ólífum en ekki ræktuðum (Popay 2016).
Mismunandi tegundir af extra virgin ólífuolíu. Myndin fengin héðan en hana á ©J. TOUS.
Snemma virðist olían einnig hafa fengið eitthvert trúarinntak og þótti heppilegt að smyrja hluti og fólk upp úr olíunni við ýmsar trúarathafnir. Smám saman fór fólk síðan að nota olíuna við matreiðslu og þykir nú víða alveg ómissandi. Diana Wells (2010) segir frá því að Rómverjar hafi nýtt olíuna sem eins konar sápu til að ná af sér óhreinindum. Enn þekkist að nota ólífuolíu í sturtusápur.
Dæmi um ólífur í sturtusápu. Mynd: Sig.A.
Mismunandi bragð af ólífuolíu getur stafað af ræktunarskilyrðum, yrkjum, vinnslu og þroska aldinna ásamt fleiri þáttum sem of langt mál yrði að telja upp enda fellur það utan við efni þessa pistils. Sjálfsagt er það svo með ólífur og ólífuolíu eins og með svo margt annað að þær bestu eru þær sem fólk er vant að borða.
Olíupressa frá dögum Rómverja. Myndin fengin héðan en hana á Heinz-Josef. Þegar Rómarveldi þandist út við Miðjarðarhafið dreifðist ræktun ólífutrjáa með þeim um hinn þekkta heim. Sumir segja að tök Rómverja á ræktuninni hafi átt stóran þátt í að byggja upp heimsveldi þeirra (Spadea 2022).