Fram á toppinn en KA er enn í níunda sæti

KA tapaði fyrir Fram á heimavelli í kvöld í Olísdeildinni í handbolta. Eftir að staðan var 18:16 fyrir Framara í hálfleik fögnuðu þeir þriggja marka sigri, 37:34, og sæti á toppi deildarinnar. KA-menn eru hins vegar í níunda sæti sem fyrr.
Leikurinn í KA-heimilinu var fjörugur og bráðskemmtilegur; sóknarleikurinn í fyrirrúmi. KA-menn byrjuðu að krafti og gerðu þrjú fyrstu mörkun en Framarar jöfnuðu 5:5 og fyrri hálfleikurinn var í járnum lengi vel en gestirnir komust tveimur mörkum fram úr áður en hálfleikurinn var úti.
Nicolai Horntvedt Kristensen varði 14 skot í kvöld, m.a. þetta vítakast Ívars Loga Styrmissonar (34) seint í fyrri hálfleik. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Fjörið hélt áfram í seinni hálfleik, gestirnir skrefi á undan og munurinn eitt til tvö mörk framan af en Framarar komust fimm mörkum yfir skömmu eftir miðjan hálfleikinn. Heimamenn lögðu ekki árar í bát þrátt fyrir mótlætið heldur gyrtu sig í brók, vel stemmdum stuðningsmönnum til mikillar gleði, og Patrekur Stefánsson jafnaði eftir hraðaupphlaup þegar fimm og hálf mín. var eftir, 33:33.
Þá tóku gestirnir af skarið á ný og gerðu fjögur mörk gegn einu á lokasprettinum.
Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 12 (1 víti), Patrekur Stefánsson 8, Dagur Árni Heimisson 6, Einar Birgir Stefánsson 3, Ott Varik 3, Arnór Ísak Haddsson 1, Logi Gautason 1,
Varin skot: Nicolai Horntvedt Kristensen 14 (1 víti) – 31,8%, Úlfar Örn Guðbjartarson 2 (28,%)
Átta efstu liðin eftir 22 umferðir komast í úrslitakeppnina. KA er nú í níunda sæti með 12 stig, tveimur minna en HK sem er í áttunda sætinu. Þar fyrir ofan eru ÍBV með 16 stig, sem á reyndar leik til góða, og Stjarnan með 18. KA á eftir að mæta öllum þremur liðunum.
KA á þessa leiki eftir:
- HK - KA
- KA - ÍBV
- Stjarnan - KA
- KA - FH
- Fjölnir - KA


Yfirgripsmikið þekkingarleysi

Ferðasjóður ÍSÍ hefur rýrnað frá árinu 2019

Ósanngjörn byrði á landsbyggðarfólk

Takk Þór! Áfram fótboltaforeldrar
