Alicja Julia og Örn Kató sundfólk Óðins

Sundfélagið Óðinn hefur valið sundfólk ársins úr sínum röðum. Fyrir valinu urðu Alicja Julia Kempisty og Örn Kató Arnarsson.
Greint er frá valinu á vef félagsins og þar eru eftirfarandi umsagnir og árangur sundfólksins á árinu.
Örn Kató Arnarsson. Hann býr í Svíþjóð þar sem hann æfir sund við bestu aðstæður og stundar nám. Örn flutti til Svíþjóðar í fyrra til þess að geta einbeitt sér betur að íþrótt sinni og náð frekari árangri. Hann hefur sýnt mikla framfarir og hefur æft gríðarlega vel á árinu. Hann leggur mesta áherslu á lengri sundgreinar sem eru 1500 m, 800 m og 400 m skriðsund en hann syndir einnig bringusundsgreinar. Hann hefur náð góðum árangri og hefur t.d. unnið gullið í unglingaflokki í vestur Svíþjóð í öllum lengri greinunum.
Alicja Julia Kempisty. Alicja er ung og efnileg sundkona og ein sterkasta sundkona landsins í sínum aldursflokki og hefur unnið sér sæti í Framtíðarhóp Sundsambands Íslands síðustu misserin. Hennar sterkustu greinar eru skriðsundsgreinar, einna helst 200 m skriðsund en þar er hún stigahæst
sundkvenna Óðins með 507 FINA stig. Fjölhæfni hennar þó mikil og er hún sterk í öllum vegalengdum í skriðsundi en hún er jafnframt öflug baksunds- og
flugsundskona. Alicja stundar sína íþrótt vel, mætir á allar æfingar og sýnir mikinn metnað með ástundun sinni.


Útvistun kjarasamninga

Töfrar tónlistar

Verði stórveldi með eigin her

Yfirgripsmikið þekkingarleysi
