Fara í efni
Umræðan

Kosningaþátttaka á Akureyri var 79,33%

Jakob Frímann Magnússon, oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi, var kjörinn á þing. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Á Akureyri greiddu 11.400 manns atkvæði í alþingiskosningunum, 79,33% þeirra sem rétt höfðu til að kjósa. Á kjörskrá voru 14.378, á kjörstað á laugardag kusu 8.199 en utankjörfundaratkvæði voru 3.201.

Hér má sjá hvernig kjörsóknin var á Akureyri yfir daginn.

Kjör­sókn á landinu í heild var örlítið lakari en í alþing­is­kosn­ing­um 2017. Alls greiddu 201.792 at­kvæði í ár eða 80,1% kosn­inga­bærra manna en 81,2% árið 2017, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. „Kjör­sókn var nokkuð jöfn á milli kjör­dæma. Í Norðvest­ur­kjör­dæmi var hún mest, þar kusu 82%. Dræm­ust var hún í Reykja­vík­ur­kjör­dæmun­um tveim­ur og Suður­kjör­dæmi þar sem 79% greiddu at­kvæði. Kjör­sókn­in er ör­lítið betri en árið 2016 þegar 79,2% kosn­inga­bærra manna kusu,“ segir á mbl.is þar sem vísað er í Morgunblaðið. Nánar hér

Bæjarfulltrúar, hugsið málið

Jón Ingi Cæsarsson skrifar
21. desember 2024 | kl. 06:00

Jólagjöfin handa tónlistarskólanum

Ólafur Kjartansson skrifar
20. desember 2024 | kl. 06:00

Fögur fyrirheit en fátt um efndir

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
19. desember 2024 | kl. 10:00

„Nei“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
06. desember 2024 | kl. 12:10

Stórhættulegt fordæmi að viðurkenna ekki úrslit kosninga

Stjórnarskrárfélagið skrifar
06. desember 2024 | kl. 12:00

Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka skatta og létta byrði

Jens Garðar Helgason skrifar
29. nóvember 2024 | kl. 06:00