Björg EA gerði 4678 metra hátt jólatré!

Stærsta jólatré sem Akureyri.net hefur frétt af var búið til í Eyjafjarðarál í gærkvöldi – 4678 metra hátt og 5346 metra breitt! Að vísu er ekki um heðbundið jólatré að ræða heldur uppátæki skipstjórnenda á Björgu EA7, einu skipa Samherja.
„Kjartan Vilbergsson yfirvélstjóri á Björgu kom með þá hugmynd á landleiðinni að reyna að teikna jólatré,“ skrifar skipstjórinn, Árni Rúnar Jóhannesson, á Facebook síðun og bætir við: „Áskorun tekið og við sigldum jólin inn!!“
Árni Rúnar segir skipverja á Björgu EA7 halda að jólatréð þeirra sé það stærsta á Íslandi: „Það er 4678 metra hátt og 5346m breitt (svolítið í stíl við mig, lágreist og þétt á velli). Verkið tók tvo og hálfan klukkutíma og á einni myndinni sést Grímsey, þá er betra að átta sig á stærð jólatrésins okkar.“
Rauður hringur er dreginn um Grímsey að ofan. „Á myndunum sést ferlið ágætlega, allt frá siglingaleiðinni og að fullkomnu verki. Setti meira að segja réttu litina á það“


Útvistun kjarasamninga

Töfrar tónlistar

Verði stórveldi með eigin her

Yfirgripsmikið þekkingarleysi
