Fara í efni
Umræðan

Baldvin stórbætti eigið Íslandsmet í 1500 m

Baldvin Þór í viðtali við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamann RÚV eftir hlaupið í kvöld. Mótið var í beinni útsendingu á RÚV 2. Skjáskot af RÚV.

Baldvin Þór Magnússon úr Ungmennafélagi Akureyrar stórbætti eigið Íslandsmet í 1500 metra hlaupi innanhúss í kvöld á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni. Hann sigraði í greininni og varð fyrstur Íslendinga til að hlaupa vegalengdina á innan við 3 mínútum og 40 sekúndum innanhúss; tími Baldvins í kvöld var 3:39,67 mín.

Aðeins er rúm vika síðan Baldvin Þór bætti eigið Íslandsmet í 3000 metra hlaupi innanhúss á móti í Sheffield á Englandi.

Metið sem Baldvin bætti í kvöld setti hann á Reykjavíkurleikunum 4. febrúar á síðasta ári; þá hljóp hann 1500 m á 3:41,05. Eftir hlaupið í kvöld er Íslandsmet Baldvins innanhúss betra en met hans utanhúss. Það setti hann í júlí á síðasta ári: 3:39,90 mín.

Baldvin á níu Íslandsmet

Baldvin Þór á Íslandsmet í fimm greinum utanhúss:

  • 1500 m – 3:39,90 mín – sett í júlí 2024
  • 3000 m – 7:49,68 mín – sett í júlí 2023
  • 5000 m – 13:20,34 mín – sett í apríl 2024
  • 5 km götuhlaup – 13:42,00 mín – sett í mars 2024
  • 10 km götuhlaup – 28:51,00 mín – sett í október 2023

Hann á fjögur Íslandsmet innanhúss:

  • 1500 m – 3:39,67 – 27. janúar 2025
  • 1 míla – 3:59,60 – 14. janúar 2023
  • 3000 m – 7:45,13 – 19. janúar 2025
  • 5000 m – 13:58,24 – 24. febrúar 2023

Óvissa þegar heimilisbókhaldið gengur ekki upp

Eiður Stefánsson skrifar
13. mars 2025 | kl. 18:00

OFF – Oflæti, fákunnátta og fordómar

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
12. mars 2025 | kl. 20:10

Að komast frá mömmu og pabba

Ingibjörg Isaksen skrifar
10. mars 2025 | kl. 11:20

Hættuleg ofnotkun svefnlyfja

Drífa Sigfúsdóttir skrifar
09. mars 2025 | kl. 06:00

10 atriði varðandi símabann í skólum

Skúli Bragi Geirdal skrifar
07. mars 2025 | kl. 14:00

Þetta snýst nú á endanum um bílastæði

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
05. mars 2025 | kl. 14:00