Fara í efni
Pistlar

Birgir Baldvinsson semur við KA til 2027

Mynd af vef KA

Birgir Baldvinsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn út sumarið 2027. 

Birgir, sem er 23 ára gamall vinstri bakvörður, er uppalinn hjá KA og hefur leikið 31 leik fyrir félagið í deild, bikarkeppni og Evrópukeppni.

„Meðfram því að leika með KA hefur Biggi stundað krefjandi nám í Bandaríkjunum en vegna námsins hefur hann þurft að yfirgefa herbúðir KA á miðju sumri í ár sem og í fyrra,“ segir á heimasíðu KA í morgun, þar sem greint er frá samningnum. „Hann er nú að klára námið ytra og ljóst að það verður gífurlegur styrkur að njóta krafta hans næstu árin ... ,“ segir í tilkynningunni.

Birgir kom fyrst við sögu meistaraflokks KA sumarið 2018 en lék sem lánsmaður með Aftureldingu og Leikni leiktíðirnar 2020 til 2022 þar sem hann vakti verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. „Þetta eru stórkostlegar fréttir enda hefur Biggi verið gríðarlega öflugur í gula og bláa búningnum og afar jákvætt að halda honum innan okkar raða,“ í tilkynningunni á vef KA í morgun.

Tré og upphaf akuryrkju í heiminum

Sigurður Arnarson skrifar
16. október 2024 | kl. 09:09

Ylfingur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
14. október 2024 | kl. 11:30

Hús dagsins: Aðalstræti 13

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
13. október 2024 | kl. 20:00

Ellefu bækur í jólagjöf

Jóhann Árelíuz skrifar
13. október 2024 | kl. 06:00

Hryllilega skemmtileg hryllingsbúð

Rakel Hinriksdóttir skrifar
12. október 2024 | kl. 18:00

Kjaftagleiðir Akureyringar

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
12. október 2024 | kl. 06:00