Lífsleiðin hjá mömmu var langt í frá að vera alltaf auðveld, eða greiðfarin, en aldrei hvarflaði að henni að leggja árar í bát eða gefast upp. Markmiðin voru alltaf skýr, leiðin að þeim ekki alltaf einföld, en hún hélt áfram og náði oftast að marki.
Markmiðið var alltaf að efla fjölskylduna og halda henni saman. Hluti af því var draumurinn að eignast eigið húsnæði, sem rættist árið 1970, þegar hún eignaðist sína fyrstu íbúð í Brekkugötu. Eftir það bjó hún ævina alla í eigin húsnæði, ef frá eru talin síðustu æviárin sem hún eyddi í góðu yfirlæti í Lögmannshlíð.
Hún lagði mikla áherslu á að standa ávallt í skilum, að koma börnunum til mennta og var óspör á hvatningar í þá átt og stolt þegar vel gekk og við útskriftir.
Mamma tók virkan þátt í félagsstörfum, hafði sterka réttlætiskennd, vildi rétta hlut þeirra sem höllustum fæti standa. Hún starfaði lengi í Mæðrastyrksnefnd, lengst af sem formaður, tók þátt í starfi Verkalýðsfélagsins Einingar og var sæmd gullmerki félagsins.
Hún starfaði einnig með Málfreyjum og í kvenfélögum.
Mamma ferðaðist ekki mikið, vinnan hlaut að hafa forgang. En þegar Gunnhildur Harpa greindist með alvarlegan hjartagalla lagði hún óhikað í löng og ströng ferðalög. Þær mæðgur dvöldu lengi í Kaupmannahöfn 1965 og fóru til London árin 1973, 1974 og 1987. Þessar ferðir voru að mestu bundnar við sjúkrahúsdvöl, um stórar aðgerðir var að ræða, en stöku stund gafst þó til skoðunarferða.
Þegar hún var komin fast að áttræðu rættist gamall draumur hennar er hún ferðaðist um Íslendingaslóðir í Kanada. Þar kom hún meðal annars til Gimli, Hecklu eyju, Árborgar og Árness , hitti fjölda ættingja og vitjaði legstaðar langömmu sinnar.
Mamma hafði yndi af hannyrðum, saumaði út, flosaði og heklaði. Hún saumaði sér íslenskan þjóðbúning, upphlut og klæddist honum stolt á mannamótum og við sérstök tækifæri.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu' og blessaðu þá
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir)
Við eigum og geymum minninguna, og minnumst móður okkar með þakklæti og kærleika, hvíli hún í friði.
Tryggvi, Sigríður Dóra, Sigurjón, Gunnhildur Harpa og Tómas