Brynjar Elís Ákason – lífshlaupið
Brynjar Elís Ákason fæddist á Sjúkrahúsinu á Akureyri 4. apríl 1992. Hann lést 13. janúar 2025.
Hann var sonur hjónanna Bryndísar Karlsdóttur, f. 23.02.1962, og Áka Elíssonar, f. 15.02.1958, d. 12.03.1994.
Systur Brynjars eru: 1) Fjóla Ákadóttir, f. 28.07.1980, eiginmaður hennar er Gísli Arnar Guðmundsson, f. 25.11.1972. Börn þeirra eru Birta, Kári og Tinna. 2) Sóley Ákadóttir, f. 20.06.1986, eiginmaður hennar er Hannes Bjarni Hannesson, f. 16.12.1986. Börn þeirra eru Bjarki Freyr og Karen. 3) Lilja Ákadóttir, f. 01.09.1988, eiginmaður hennar er Jón Pétur Indriðason, f. 15.06.1987. Dætur þeirra eru Árný Ýr, Aníta Ósk og Arna Björk.
Eftirlifandi eiginkona Brynjars er Helga Þórsdóttir læknir, f. 29.06.1995. Foreldrar hennar eru Þór Jónsson, f. 11.11.1961, og Ásta Björg Pálmadóttir, f. 04.07.1964.
Systkini Helgu eru Svala Aðalsteinsdóttir, f. 23.03.1986, og Pálmi Þórsson, f. 11.02.1998. Unnusta hans er Kristín Hermannsdóttir, f. 17.02.1998.
Brynjar Elís bjó sín bernskuár í Borgarsíðu í Þorpinu á Akureyri, og gekk í Síðuskóla. Hann sýndi snemma fram á leikni og samviskusemi í námi, og þá sérstaklega stærðfræði sem lá vel fyrir honum. Eftir grunnskóla lá leið hans í Menntaskólann á Akureyri þar sem hann stundaði nám á eðlisfræðibraut og útskrifaðist þaðan 17. júní 2012 með fyrstu einkunn. Á lokaári sínu í MA kynntist hann ungri snót úr Skagafirði sem var á sínu fyrsta ári, og voru þau Brynjar og Helga óaðskiljanleg alla tíð síðan. Brynjar útskrifaðist með BSc gráðu í iðnaðarverkfræði frá HÍ og fór svo í meistaranám í rekstrarverkfræði með fjármálaverkfræði sem aukagrein í Háskólanum í Reykjavík. Hann útskrifaðist þaðan sumarið 2019 og hlaut verðlaun fyrir námsárangur ásamt því að vera heiðraður af Verkfræðingafélagi Íslands fyrir meistararitgerð sína um lífeyrissjóðakerfið á Íslandi.
Samhliða námi starfaði Brynjar m.a. hjá Íbúðalánasjóði á Sauðárkróki og Lífeyrissjóði Verslunarmanna. Eftir að námi lauk hóf hann störf við áhættustýringu hjá Arion Banka. Þar starfaði hann allt þar til í mars 2024 þegar hann söðlaði um og hóf störf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga samhliða því að þau Helga fluttu norður á Sauðárkrók.
Brynjar Elís og Helga gengu í hjónaband 27. júlí sl. og höfðu þá verið í sambúð í rúmlega 10 ár.
Útför Brynjars verður frá Glerárkirkju í dag, föstudaginn 31. janúar, kl. 13.00.