Fara í efni
KA/Þór

Gönguskíðabrautir troðnar í Kjarnaskógi

Mynd: Facebooksíða Skógræktarfélags Eyfirðinga

Snjó hefur kyngt niður á Akureyri undanfarna tvo sólarhringa. Þetta hefur glatt mörg börn sem hafa drifið sig út í með þotur og sleða. Þá hefur  Skógræktarfélag Eyfirðinga tilkynnt að gönguskíðafólk sé velkomið í Kjarnaskóg því búið er að troða helstu göngu- og skíðaleiðir þar og í Naustaborgum. Þá er líka tilvalið að taka þoturnar með í Kjarnaskóg og taka Hoppsa-Bomm í sleðabrekkunni, eins og segir í tilkynningu frá félaginu.

HÉR er hægt að fylgjast með stöðunni á gönguskíðabrautum í Kjarnaskógi.