Fara í efni
Umræðan

Ingibjörg Isaksen áfram efst hjá Framsókn

Ingibjörg Ólöf Isaksen, alþingismaður,  verður í 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi við kosningarnar til Alþingis 30. nóvember og Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður, verður í 2. sæti. Listinn var samþykktur síðdegis á fjölmennu kjördæmisþingi á Hótel Seli í Mývatnssveit.

Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar í Múlaþingi, verður í 3. sæti listans, Skúli Bragi Geirdal, verkefnisstjóri Fjölmiðlanefndar, verður í 4. sæti og í því 5. verður Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð.

„Ég er stolt af því að fá að leiða þennan öfluga lista okkar Framsóknarfólks í kjördæminu. Við byggjum á góðri reynslu, dýrmætum mannauð og breiðri þekkingu á kjördæminu öllu,“ segir Ingibjörg Isaksen í tilkynningu sem Framsókn sendi frá sér. „Við höfum átt í góðu samtali við fólkið í kjördæminu og göngum full tilhlökkunar til samtals við kjósendur, enda eru tækifærin mörg og fjölbreytt. Við viljum halda áfram að efla heilbrigðisþjónustu um land allt, vinna að orkuöryggi, húsnæðismálum og ekki síst að vinna að lækkun vaxta og verðbólgu fyrir fólkið í landinu. Við erum stolt af þeim árangri sem náðst hefur í flóknu samstarfi á síðustu árum og hlökkum til samtalsins næstu vikna.“

Þórarinn Ingi Pétursson - Jónína Brynjólfsdóttir - Skúli Bragi Geirdal - Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

Listi Framsóknar í Norðausturkjördæmi í heild sinni:

  1. Ingibjörg Ólöf Isaksen, alþingismaður, Akureyri
  2. Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður, Grýtubakkahreppi
  3. Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, Múlaþingi
  4. Skúli Bragi Geirdal, verkefnisstjóri Fjölmiðlanefndar, Akureyri
  5. Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi, Fjarðabyggð
  6. Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi, Norðurþing
  7. Ásdís Helga Bjarnadóttir, yfirverkefnastjóri, Múlaþingi
  8. Jón K. Ólafsson, forstöðumaður, Fjallabyggð
  9. Eiður Pétursson, vélfræðingur, Norðurþingi
  10. Halldóra Magnúsdóttir, kennari, Eyjafjarðarsveit
  11. Elís Pétur Elísson, framkvæmdastjóri, Fjarðarbyggð
  12. Kristjana Louise Friðbjarnardóttir, starfsmaður á hjúkrunarheimili, Vopnafirði
  13. Eggert Stefánsson, bóndi, Langanesbyggð
  14. Patrycja Maria Reimus, námsráðgjafi, Þingeyjarsveit
  15. Halldóra Hauksdóttir, lögmaður, Akureyri
  16. Monika Margrét Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri, Dalvíkurbyggð
  17. Snæbjörn Sigurðson, verkefnastjóri, Akureyri
  18. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, ritari, Múlaþingi
  19. Egill Olgeirsson, ellilífeyrisþegi, Norðurþingi
  20. Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, Fjarðarbyggð

Af kirkjutröppum og kammerráði

Gísli Sigurgeirsson skrifar
31. október 2024 | kl. 17:00

Flokkur fólksins er fyrir þig

Sigurjón Þórðarson skrifar
31. október 2024 | kl. 13:00

Mjög skiljanleg umræða um EES

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
28. október 2024 | kl. 18:30

Hvalveiðar og geirfuglinn

Aðalsteinn Árnason skrifar
28. október 2024 | kl. 10:00

Vinnuvikan stytt en álag á nemendur aukið

Karl Liljendal Hólmgeirsson skrifar
27. október 2024 | kl. 16:00

Kennarar kjósa frekar mannúð en úlfúð

Hlín Bolladóttir skrifar
24. október 2024 | kl. 20:45