Fara í efni
Pistlar

Fyrsti sigur KA í deildinni í sumar – MYNDIR

KA-menn fagna eftir að fyrirliðinn, Ívar Örn Árnason, kom liðinu í 2:1 í seinni hálfleik. Myndir: Ármann Hinrik

KA-menn fögnuðu mikilvægum sigri, þeim fyrsta í Bestu deildinni í knattspyrnu í sumar, þegar FH-ingar komu í heimsókn í dag. Liðin voru í tveimur neðstu sætum efstu deildar Íslandsmótsins fyrir daginn með eitt stig en KA er komið upp í áttunda sæti, a.m.k. tímabundið, eftir 3:2 sigur í hörkuleik.

Hrannar Björn Steingrímsson, sem kom inn í byrjunarliðið á ný í dag, hélt upp á það með því að koma KA yfir með glæsilegu skoti utan vítateigs á 14. mín. Þetta er þriðja mark Hrannars í efstu deild og það fyrsta í sex ár!

Ármann Hinrik var með myndavélina á Greifavelli KA í dag og býður upp á þessa glæsilegu myndaveislu.

MARK HRANNARS


_ _ _

FH JAFNAR
Böðvar Böðvarsson jafnaði fyrir FH eftir hálftíma. FH fékk horn, KA-menn náðu að koma boltanum burtu en föst sending kom strax inn í teig aftur og Böðvar (númer 21) skoraði af stuttu færi.


_ _ _

KA YFIR Á NÝ
Ívar Örn Árnason fyrirliði KA náði forystunni aftur þegar um stundarfjórðungur var liðinn af seinni hálfleik. Hallgrímur Mar Steingrímsson tók hornspyrnu, upphaflega var markið skráð sem sjálfsmark á leikskýrslu en dómarinn breytti því síðar. Ívar Örn er þriðji frá vinstri á efstu myndinni.


_ _ _

FH JAFNAR - LÍTIÐ EFTIR
Þegar FH jafnaði aðeins nokkrum mín. fyrir leikslok var hins vegar um sjálfsmark að ræða; barist var um boltann í vítateignum eftir hornspyrnu og boltinn hrökk í markið af Rodri, leikmanni KA. Hann er lengst til hægri á myndinni.


_ _ _

ÓTRÚLEGT - EN SATT!
Stuðningsmönnum KA varð eðlilega ekki um sel þegar boltinn fór af Rodri og í markið enda lítið eftir. Þeir tóku gleði sína hins vegar á ný innan við mínútu síðar! Lið þeirra brunaði nefnilega fram í sókn strax eftir að byrjað var á miðju eftir jöfnunarmarkið og Bjarni Aðalsteinsson skoraði! Ásgeir Sigurgeirsson fékk boltann á hægri kantinum og þrumaði honum inn á markteigshornið nær þar sem Bjarni batt endahnútinn á góða sókn og tryggði mikilvægan og sanngjarnan sigur. KA-menn fagna sigurmarkinu á myndinni hér að neðan.

Leikskýrslan

Staðan

Pétur læknir

Jóhann Árelíuz skrifar
27. apríl 2025 | kl. 06:00

Bjóðum þjófa og slordóna velkomna

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
26. apríl 2025 | kl. 06:00

Amma Kristín

Kristín Aðalsteinsdóttir skrifar
25. apríl 2025 | kl. 06:00

Júdasartré

Sigurður Arnarson skrifar
23. apríl 2025 | kl. 08:30

Saumaherbergi

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
21. apríl 2025 | kl. 11:30

Lútur á grænni flösku

Jóhann Árelíuz skrifar
20. apríl 2025 | kl. 06:00