Fara í efni
Minningargreinar

Svanur Eiríksson

Elsku afi.

Mér finnst svo sárt að þú sért farinn frá okkur. Þú varst geggjað góður afi og mjög fyndinn. Þú vildir alltaf spila við mig þegar ég kom í heimsókn á leiðinni heim úr KA eða skólanum, nema ef þú varst að horfa á sjónvarpið með heyrnartólin. Við spiluðum rommý og ólsen og þú varst pínu tapsár ef ég vann þig.

Það var gott að fá knús hjá þér og sérstaklega þykir mér vænt um síðasta knúsið nokkrum klukkustundum áður en þú fórst. Ég vissi ekki að þetta var síðasta skiptið sem ég fengi að knúsa þig. Ég vildi að ég hefði nýtt það betur og haldið þér fastar.

Það er skrýtið að koma til ömmu núna og þú ert ekki þar. Það er tómlegt en samt margt sem minnir mig á þig, t.d. afakryddið, pípurnar þínar og hægindastóllinn þinn.

Ég skal passa ömmu fyrir þig, elsku afi, og nýta tímann vel með henni því nú veit ég hvað tíminn er dýrmætur.

Þín,

Sif Sævarsdóttir

Tony Byrne

Arngrímur B. Jóhannsson skrifar
04. október 2024 | kl. 21:00

Sigmundur Þórisson

Tómas Lárus Vilbergsson skrifar
04. október 2024 | kl. 06:00

Ásta Þórunn Þráinsdóttir

Gunnlaugur Þráinsson skrifar
13. september 2024 | kl. 17:00

Petra Benedikta Kristjánsdóttir

Sigfús Ólafur Helgason skrifar
26. ágúst 2024 | kl. 06:01

Petra Benedikta Kristjánsdóttir

Vilhjálmur Geir Kristjánsson skrifar
26. ágúst 2024 | kl. 06:01