Fara í efni
Minningargreinar

Kári Árnason – lífshlaupið

Kári Árnason fæddist á Akureyri 25. febrúar 1944. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð 2. júlí 2024.

Foreldar Kára voru Ingunn Elísabet Jónsdóttir f. 1910 og Árni Friðriksson f. 1902. Kári var fjórði í röðinni af fimm alsystkinum. Systkini hans eru Kolbrún Árnadóttir f. 1939, tvíburarnir Friðrik Árnason f. 1941 og Ólöf Erla Árnadóttir f. 1941 d. 2019 og Einar Árnason f.  1947 Hálfsystkini Kára voru Rósa Árnadóttir f. 1929 og tvíburarnir Kristján Árnason og Svanhildur Árnadóttir f. 1933.

Kári giftist Ásdísi Þorvaldsdóttur 27. nóvember 1965. Dætur þeirra eru:

1) Elva María Káradóttir f. 1964, gift Bernharði Valssyni f. 1965. Synir þeirra eru: 1) Breki Bernharðsson f. 1995, sambýliskona hans er Auður Harpa Skúladóttir f. 1995. Dóttir þeirra er Sigrún Myrra Brekadóttir f. 2021. 2) Starri Bernharðsson f. 2000.

2) Katrín Káradóttir f. 1969, gift Jóni Ingva Árnasyni f. 1970. Synir þeirra eru: 1) Baldur Jónsson f. 1993, sambýliskona hans er Guðný Ragna Ragnarsdóttir f. 1989. 2) Freyr Jónsson f. 2001. 3) Kári Jónsson f. 2008.

3) Erna Káradóttir f. 1971. Dóttir hennar er Hulda Dís Aðalsteinsdóttir f. 2006.

Kári ólst upp á Akureyri og fékk snemma áhuga á íþróttum. Lék knattspyrnu með Íþróttabandalagi Akureyrar, ÍBA, á árunum 1960 til 1974 og varð bikarmeistari með liðinu 1969. Skoraði hann sigurmarkið í 3:2 sigri gegn Skagamönnum.

Kári var marksækinn framherji, skoraði 42 mörk fyrir ÍBA í efstu deild og varð markakóngur deildarinnar 1968 og markahæstur í næstefstu deild fjórum árum síðar.

Kári lék með ÍBA sem fyrr segir en þegar KA og Þór fóru hvort í sína áttina og hófu keppni í 3. deild, neðstu deild Íslandsmótsins, sumarið 1975 lagði Kári skóna á hilluna.

Kári lék 11 leiki með íslenska landsliðinu á árunum 1961-1971 og skoraði eitt mark, gegn Spánverjum 1967. Hann tók einnig þátt í landsleiknum fræga gegn Dönum, sem tapaðist 14:2 í Kaupmannahöfn sumarið 1967. Hann var KA-maður að upplagi og tók virkan þátt í uppbyggingu félagsins með ómældu sjálfboðaliðastarfi. Hann stundaði nám í Íþróttakennaraskólanum og starfaði lengi sem íþróttakennari í Brekkuskóla og síðar almennur kennari þar. Kári hafði mikinn áhuga á útivist hvers konar, var virkur félagi í Ferðafélagi Akureyrar og gekk m.a. á alla tinda Eyjafjarðar, þar af margsinnis á bæjarfjallið Súlur og færði þær ferðir í dagbækur allt aftur til 1961.

Útför Kára Árnasonar verður frá Akureyrarkirkju í dag klukkan 13.00.

Petra Benedikta Kristjánsdóttir

Sigfús Ólafur Helgason skrifar
26. ágúst 2024 | kl. 06:01

Petra Benedikta Kristjánsdóttir

Vilhjálmur Geir Kristjánsson skrifar
26. ágúst 2024 | kl. 06:01

Ingibjörg Gústavsdóttir

Úlfar Bragason skrifar
19. ágúst 2024 | kl. 06:00

Kári Árnason

Íþróttafélagið Þór skrifar
19. júlí 2024 | kl. 11:00