Brynjar Elís Ákason
Elsku hjartans Brynjar Elís minn.
Það er óraunverulegt að sitja hérna og skrifa minningarorð um þig. Þetta er eitthvað sem ég hélt ég myndi gera seint á ævinni eða jafnvel aldrei. Hvar á ég eiginlega að byrja?
Fyrst og fremst langar mig að þakka þér; þakka þér fyrir að elska mig, hafa trú á mér og vera minn helsti og mesti stuðningsmaður, endalausa þolinmæði, greiðviknina, allan góða matinn og auðvitað samvinnuna og samveruna.
Ég er svo stolt af því að hafa fengið að vera konan þín. Ég var alltaf svo montin af þér, og verð það alltaf. Þú varst einstakt ljúfmenni, hugulsamur, klár og svona get ég haldið endalaust áfram. Þú lést mér alltaf líða eins og ég væri eina manneskjan í heiminum sem skipti máli. Hér er ljóð sem ég fann sem mér finnst eiga svo vel við um þig;
Umhyggju og ástúð þína,
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið,
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur,
var þitt dýpsta hjartans mál.
Þú sagðir reglulega við mig að uppáhaldsstundirnar þínar væru um helgar, þegar við fengum okkur kaffi og ég var með hárið allt út í loftið, og við ræddum heima og geima. Þú sagðir líka reglulega við mig: „það verður einhver að hugsa um lækninn svo hann geti hugsað um alla hina!“
Það var svo margt framundan hjá okkur, og nú hefur heimurinn snúist á hvolf á augabragði. Ég syrgi þig og sakna þín, og á sama tíma syrgi ég allt það sem aldrei verður. Ég hef góðan stuðning frá öllu fólkinu okkar elsku Brynjar minn. Þú skilur eftir þig djúpt skarð í heiminum sem við þurfum öll að hjálpast að við að læra að lifa með. Minning þín mun aldrei gleymast og það er her af fólki sem hjálpast að við að halda henni á lofti.
Við höfum gengið í gegnum svo margt saman, mörg þroskastig, og þú og okkar ást hefur haft djúpstæð mótunaráhrif á mig. Því enda ég þetta á versi úr lagi frá Sálinni sem var spilað í brúðkaupinu okkar síðasta sumar og á vel við;
Ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð áfram, enginn vafi er um það.
Ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð alltaf, enginn vafi er um það.
Ég elska þig Brynjar Elís, alltaf, að eilífu. Sjáumst seinna.
Þín, Helga