Tony Byrne
04. október 2024 | kl. 21:00
Elsku besti pabbi!
Ég man svo vel eftir því þegar við fórum saman í Monky park á Tenerife og við sáum górillu og þú reyndir að æsa þig og lyftir höndum og horfðir lengi í augun á henni og þá stökk górillan á glerið og varð öskureið og við fórum í hláturskast á meðan en fólkinu sem var þar fannst þetta ekki jafn fyndið.
Við hlógum lengi að þessu.
Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig.
Ég elska þig!
Þín,
Berglind Eva