Fara í efni
Umræðan

Þór/KA semur við bandarískan leikmann

Ellie Moreno, nýr leikmaður Þórs/KA, í leik með háskólaliði sínu í Flórída í Bandaríkjunum.

Þór/KA hefur samið við bandarískan leikmann, Ellie Moreno, um að leika með liðinu í sumar. Moreno er framherji eða sóknarsinnaður miðjumaður að því er fram kemur í frétt á vef félagsins. Hún hefur undanfarin spilað með liði UCF háskólans í Flórída (University of Central Florida). 

Um komu Ellie Moreno segir einnig á vef félagsins: 

Með því að fá Ellie Moreno til liðs við Þór/KA er markmiðið einfaldlega að styrkja þann öfluga hóp sem félagið hefur nú þegar yfir að ráða, auka breiddina og vera betur í stakk búið að takast á við meiðsli og önnur forföll sem geta komið upp og hafa komið upp á tímabilinu.

„Við erum ánægð með hópinn okkar í Þór/KA og ætlum okkur klárlega að vera samkeppnishæf í mótum sumarsins. Koma Ellie styrkir hópinn og þéttir raðirnar fyrir komandi átök,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, um komu leikmannsins til félagsins.

Stjórn Þórs/KA, þjálfarateyminu og þeim sem starfa í kringum liðið, ásamt leikmannahópnum, er full alvara í því að berjast um alla þá titla sem í boði eru. Liðið fór alla leið í úrslitaleik Lengjubikarsins á dögunum sem sýnir að Þór/KA á erindi í fremstu röð - og þar viljum við vera.

Afgangur og þrír þræðir jarðtengingar

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
15. apríl 2025 | kl. 16:00

Bjánarnir úti á landi

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
15. apríl 2025 | kl. 12:53

Styrk stjórn gefur góðan árangur

Ásthildur Sturludóttir skrifar
11. apríl 2025 | kl. 17:00

Hörmungarástand við Lundargötu

Jón Ingi Cæsarsson skrifar
11. apríl 2025 | kl. 10:45

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis á erindi við þig

Pétur Þór Jónasson og Inga Bára Ragnarsdóttir skrifa
08. apríl 2025 | kl. 11:45

Samfélagssáttmáli íbúa um samfélagsmiðlanotkun- og skjátíma barna

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
07. apríl 2025 | kl. 19:00