Fara í efni
Pistlar

KA leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn

KA-stelpurnar fagna deildarmeistaratitlinum í blaki fyrir skömmu. Þær eru nú bæði deildar- og bikarmeistarar og leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Kvennalið KA í blaki er komið í úrslit á Íslandsmótinu eftir öruggan sigur á HK á útivelli í gær, 3:1 – 25:12, 25:20, 21:25, 25:13.

Tvo sigra þarf til að komast í úrslit og KA vann fyrsta leik liðanna, sem reyndist sá fyrri þegar upp var staðiöð, á miðvikudaginn heimavelli.

Það kemur í ljós á þriðjudaginn hverjir verða andstæðingar KA-stelpnanna í úrslitarimmunni, Völsungur eða Afturelding. Þau mættust fyrst á Húsavík þar sem gestirnir úr Mosfellsbæ unnu 3:1 en Húsvíkingar sneru dæminu við í gær og unnu 3:1 á útivelli. Liðin mætast í oddaleik á Húsavík á þriðjudagskvöldið.

Karlalið KA getur fylgt í fótspor kvennaliðsins í dag þegar það leikur gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ. Liðin áttust við í KA-heimilinu í vikunni sem leið og KA-strákarnir unnu 3:0. Vinni þeir aftur í dag leika þeir til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn við annað hvort Reykjavíkur-Þrótt eða Hamar.

Þjálfarinn tæklaður upp í stalla

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. apríl 2025 | kl. 10:00

Snípur í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
16. apríl 2025 | kl. 08:45

Hús dagsins: Aðalstræti 66a; Smiðjan

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. apríl 2025 | kl. 20:00

Njóli

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
14. apríl 2025 | kl. 11:00

Uss í görðum

Jóhann Árelíuz skrifar
13. apríl 2025 | kl. 06:00

Skelfilegur er skorturinn

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
12. apríl 2025 | kl. 06:00