Fréttir
Halla Tómasdóttir kjörin forseti Íslands
02.06.2024 kl. 09:00
Halla Tómasdóttir var kjörin forseti Íslands í gær með miklum yfirburðum. Hún hlaut 34,3% atkvæða en Katrín Jakobsdóttir hlaut 25,2%. Halla er sjöundi forseti lýðveldisins og verður sett í embætti 1. ágúst.
Kjörsókn var 80,8% – sú mesta síðan í forsetakosningunum 1996.
Halla er 55 ára, rekstrarhagfræðingur að mennt. Eiginmaður hennar er Björn Skúlason og börn þeirra Tómas Bjartur 22 ára og Auður Ínu 20 ára.
- Á kjörskrá voru 266.935
- 215.635 kusu, sem er 80,8% kjörsókn
- Auð og ógild atkvæði: 1.317
Atkvæði féllu þannig í gær á landsvísu:
- Halla Tómasdóttir – 73.182 – 34,1%
- Katrín Jakobsdóttir – 53.980 – 25,2%
- Halla Hrund Logadóttir – 33.601 – 15,7%
- Jón Gnarr – 21.634 – 10,1%
- Baldur Þórhallsson – 18.030 – 8,4%
- Arnar Þór Jónsson – 10.881 – 5,1%
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir – 1.383 – 0,6%
- Ástþór Ástþór Magnússon Wium – 465 – 0,2%
- Ásdís Rán Gunnarsdóttir – 394 – 0,2%
- Viktor Traustason – 392 – 0,2%
- Helga Þórisdóttir – 275 – 0,1%
- Eiríkur Ingi Jóhannsson – 101 – 0,0%
Halla Tómasdóttir fékk 34,81% atkvæða í Norðausturkjördæmi, Katrín Jakobsdóttir 22,49% og Halla Hrund Logadóttir 20,61%.
Halla Tómsdóttir og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, á framboðsfundi í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í síðasta mánuði. Mynd: Þorgeir Baldursson