Fundur Morgunblaðsins og mbl.is með Katrínu
Morgunblaðið og mbl.is hafa haldið forsetafundi í þremur landsfjórðungum undanfarið og sá fjórði og síðasti verður á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Þar situr Katrín Jakobsdóttir fyrir svörum, auk þess sem kynnt verður ný skoðanakönnun sem kemur út í dag.
Fundurinn á Græna hattinum hefst klukkan 19.30 og eru allir Akureyringar og nærsveitungar velkomnir á meðan húsrúm leyfir. „Fundirnir hafa hingað til verið mjög fjölsóttir og er fólk hvatt til að mæta tímanlega,“ segir í frétt á mbl.is.
„Tveir álitsgjafar verða fengnir í upphafi fundar til að rýna í glænýja skoðanakönnun Prósents sem kemur út [í dag] og svo munu blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson spyrja Katrínu spurninga um forsetaembættið.“
Í kjölfar þess verður opnað fyrir spurningar úr sal frá fundargestum.
„Þegar hefur Morgunblaðið haldið forsetafundi á Ísafirði, Egilsstöðum og Selfossi og verður þetta því síðasti landsfjórðungurinn sem Morgunblaðið og mbl.is eiga eftir að sækja heim til þess að halda forsetafund.“