Fara í efni
Menning

Laugardagur til listar á Akureyri – MYNDIR

Gestir ganga um sýningu Kristjáns Guðmundssonar, Átta ætingar, á Listasafninu. Myndir: Rakel Hinriksdóttir

Listunnendur bæjarins gátu barmafyllt vitundina af nýjum upplifunum um helgina sem leið. Laugardagurinn bauð upp á opnanir á sýningum bæði í Hofi og Listasafninu, og á sunnudeginum ómuðu meistarar strengjanna í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hamraborg. Blaðamaður Akureyri.net rölti um sýningaropnanir á laugardeginum og tók myndir. 

Mennska og þjóðlegir strengir í verkum Ástu Sigurðardóttur í Hofi

Í Hofi kl. 14.00 var boðið upp á formlega opnun á sýningu verka Ástu Sigurðardóttur, „Gáðu ekki gæfunnar í spilin“. Ásta lést árið 1971, aðeins rúmlega fertug að aldri, en hún var rithöfundur og myndlistarkona. Verkin á sýningunni eru valin af afkomendum hennar. Til sýnis eru dúkristur sem hún gerði við smásagnasafn sitt, en það gefur sýningunni meiri dýpt, að textabrot úr sögunum fylgja hverju verki. Einnig eru til sýnis teikningar fyrir spilastokk, þar sem persónur og vættir úr þjóðararfi Íslendinga leika aðalhlutverkin og einnig málverk sem eru í einkaeigu afkomenda. Verk Ástu eru leiftrandi af mennsku og næmni fyrir tilfinningalífi manna. 

 

Dúkristan 'Kóngaliljur'. Guðmundur Ármann, grafíklistamaður frá Akureyri, þrykkti 50 eintök af hverri dúkristu eftir Ástu. Eintökin eru til sölu á sýningunni í gegnum Gallerí Fold. 

 

Iðunn Vignisdóttir, sýningarstjóri og starfsmaður Gallerís Foldar

Guðmundur Ármann, grafíklistamaður

Guðný Ása Þorsteinsdóttir, dóttir listakonunnar

Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri MAk

Þrjár nýjar og ólíkar sýningar í Listasafninu

Eftir að formlegri dagskrá lauk í Hofi, gafst gestum tími til þess að virða verkin ágætlega fyrir sér og rölta svo af stað í Listasafnið, þar sem opna átti þrjár nýjar sýningar kl. 15 sama dag. Vert er að minnast á að göngutúrinn á milli menningarstofnana var listrænn í sjálfu sér, þar sem vetrarríki Akureyrar var einstaklega fagurt um helgina. Trén voru þakin heiðhvítum snjó og öll hljóð dempuð í vetrarmýkt. 

Margt var um manninn í Listasafninu, en gá þurfti að sér til þess að komast leiðar sinnar um sali safnsins. Logi Einarsson, nýr ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, setti sýninguna og sagði nokkur orð. Sigríður Örvarsdóttir safnstjóri ávarpaði gesti sömuleiðis og boðið var upp á listamannaspjall. Sýningarnar þrjár í Listasafninu eru: Huldukona, málverk og leirverk eftir Huldu Vilhjálmsdóttur, Átta ætingar, vegglistaverk eftir Kristján Guðmundsson og Dömur mínar og herrar, ólíkar sýningar Þórðar Hans Baldurssonar og Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur, sem bæði nýta kunnugleg form sem vekja upp vangaveltur um kyn; hálsbindi annars vegar og litríkar slæður hinsvegar. 

 

Listafólkið með safnstjóra Listasafnsins. F.v. Kristján Guðmundsson, Sigríður Örvarsdóttir, Þórður Hans Baldursson, Þórunn Elísabet Sveinsdóttir og Hulda Vilhjálmsdóttir

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri