Heimaleikir KA og Þórs skarast aftur í dag
Karlalið KA og Þórs leika bæði á heimavelli í dag á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Í annað skipti á skömmum tíma skarast heimaleikir liðanna sem er afar óheppilegt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Jafnvel mætti tala um dónaskap.
Mikið er í húfi hjá báðum félögum. KA er í hörkukeppni um að ná sjötta sæti Bestu deildarinnar og Þórsarar hafa sogast niður í fallbaráttu Lengjudeildarinnar en eiga þó enn tölfræðilega möguleika á fimmta sæti, sem gefur þátttökurétt í umspili um sæti í Bestu deildinni að ári.
Leikir dagsins:
16.00 Þór - Fjölnir á Þórsvellinum (VÍS vellinum)
17.00 KA - Stjarnan á KA (Greifavelli)
Sex efstu lið Bestu deildar eftir 22 umferðir halda áfram keppni um Íslandsmeistaratitilinn en þau sex neðri mætast einnig innbyrðis í einfaldri umferð og þegar upp verður staðið falla tvö neðstu niður í Lengjudeildina. Rétt er að taka fram að lið halda öllum stigum þegar keppnin í efri og neðri hluta hefst.
Liðin í mestu baráttunni um sjötta sæti Bestu deildar eru:
4. ÍA 18 leikir - 28 stig
5. FH 18 leikir - 28 stig
6. Fram 18 leikir - 26 stig
7. Stjarnan - 18 leikir - 24 stig
8. KA - 18 leikir - 23 stig
Þannig vill til að þrír af fjórum leikjum sem KA á eftir eru gegn liði í þessari baráttu, þannig að spennan verður mikil. KA á þessa leiki eftir áður en deildinni verður skipt í tvennt:
- KA - Stjarnan
- Fram - KA
- KA - Breiðablik
- ÍA - KA
Fallbarátta er staðreynd hjá Þórsurum í augnablikinu. Mótherji dagsins, Fjölnir, er efst í deildinni eins og er. Þórsarar eiga einnig eftir að mæta ÍR, sem er nú í fjórða sæti, og þremur neðstu liðunum, Leikni, Dalvík/Reyni og Gróttu.
Neðstu liðin eru nú þessi:
- Grindavík - 17 leikir - 20 stig
- Þór - 17 leikir - 18 stig
- Leiknir R - 17 leikir - 17 stig
- Dalvík/Reynir - 17 leikir - 13 stig
- Grótta - 17 leikir - 13 stig
Þetta eru leikirnir sem Þór á eftir:
- Þór - Fjölnir
- Leiknir - Þór
- Þór - ÍR
- Þór - Dalvík/Reynir
- Grótta - Þór