Fréttir
Torfunefið lengist hægt og bítandi
12.04.2023 kl. 15:00
Búið er að reka niður hluta stálþils við Torfunefið. Bryggjan mun ná lengra út í Pollinn sem þessu nemur. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Framkvæmdir við endurnýjum og stækkun Torfunefsbryggju ganga vel og gert er ráð fyrir að hægt verði að nota mannvirkið í sumar; þótt verkinu verði fjarri því lokið verður aðstaðan orðin góð til bráðabirgða. Hvalaskoðunarbátar geta þá notað bryggjuna á ný og lítil skemmtiferðaskip jafnvel lagst þar að.
Bryggjan var ónýt, eins og Akureyri.net greindi frá fyrir margt löngu. Ákveðið var að nota tækifærið og gera ekki bara við hana heldur stækka verulega og farið var í samkeppni vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu austan Glerárgötu og sunnan við menningarhúsið Hof.
Yfirlitsmynd úr verðlaunatillögu Arkþings.
Eldri fréttir Akureyri.net um málið:
- 9. apríl 2021 - Töluverð landfylling og bryggjan endurbyggð
- 13. október 2021 - Efni frá Austurbrú sturtað í höfnina
- 28. apríl 2022 - Arkþing með bestu tillöguna um Torfunef
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson