Íbúakosning hafin um skipulag Oddeyrar
Ráðgefandi íbúakosning um breytingu á aðalskipulagi Oddeyrar hófst í dag, 27. maí, og stendur til og með næsta mánudegi, 31. maí.
Allir íbúar með lögheimili í sveitarfélaginu, 18 ára og eldri, geta tekið þátt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar. Til að komast þar inn þarf Íslykil eða rafræn skilríki. Þegar komið er inn í þjónustugáttina á að velja Kannanir úr stikunni, smella síðan Oddeyri – ráðgefandi íbúakosning og þá birtast möguleikarnir sem hægt er að velja á milli.
Smelltu hér til að fara í þjónustagáttina
Opnað hefur verið sérstakt svæði á vef bæjarins með öllum helstu upplýsingum – smellið hér til að fara þangað.
Þrír möguleikar
Valið er á milli þriggja kosta sem fela í sér mismunandi hámarkshæð bygginga á svæðinu, en auk þess er hægt að taka þátt án þess að taka afstöðu með því að merkja við fjórða kostinn. Hver og einn íbúi hefur eitt atkvæði.
Kostirnir þrír eru þessir:
- Gildandi aðalskipulag, 3 til 4 hæðir.
- Tillaga þar sem hús geta verið 5 til 6 hæðir, 22 metra yfir sjávarmáli að hámarki, þó aldrei hærri en 4 hæðir syðst á reitnum.
- Auglýst tillaga þar sem hús geta verið 6 til 8 hæðir, 25 metrar yfir sjávarmáli að hámarki
Tekið er fram á heimasíðu Akureyrarbæjar að kosningingin sé ráðgefandi en ekki bindandi „og er fyrst og fremst verið að kanna hug og vilja fólks gagnvart uppbyggingu á svæðinu. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt svo að könnunin endurspegli sem best viðhorf íbúa.“
Að neðan eru myndir af tillögunum þremur, en tekið er fram á vef Akureyrarbæjar. Þar segir: Athugið að þessar myndir eru ekki af væntanlegu útliti húsa, heldur einungis módel til að sýna mögulegt byggingarmagn. Hvort sem ákveðið verður að breyta aðalskipulagi eða ekki þá á eftir að vinna deiliskipulag og hanna húsin.
Möguleiki 1 – gildandi aðalskipulag, 3 til 4 hæðir
Möguleiki 2 – 5 til 6 hæðir, 22 metra yfir sjávarmáli að hámarki, þó aldrei hærri en 4 hæðir syðst á reitnum.
Möguleiki 3 – Auglýst tillaga þar sem hús geta verið 6 til 8 hæðir, 25 metrar yfir sjávarmáli að hámarki.