Fara í efni
Fréttir

Hleðslugarður ON opnaður á Glerártorgi

Hleðslugarður Orku náttúrunnar á Glerártorgi hefur verið opnaður. Myndir: Haraldur Ingólfsson.

Orka náttúrunnar hefur opnað svokallaðan hleðslugarð á Glerártorgi þar sem viðskiptavinir fyrirtækisins get hlaðið rafbíla sína. Stöðin samanstendur af 12 nýjum tengjum með afkastagetu allt að 480 kW á hverju tengi.

Upplýsingaskjár er á hverri stöð þar sem hægt er að velja leiðbeiningar á íslensku og öðrum tungumálum. Sérstaklega var hugað að góðu aðgengi fyrir öll þau sem nota stöðvarnar.
 
Hugað var sérstaklega að góðu aðgengi fyrir öll þau sem nota stöðvarnar. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Í tilkynningu fyrirtækisins kemur fram að opnun hleðslugarðsins á Glerártorgi sé hluti af þeirri vegferð að stækka hleðslunet ON og leggja þannig sitt af mörkum til orkuskiptanna. Hleðslugarðurinn er hluti af tíu ára afmælisuppbyggingu ON en sambærilegur hleðslugarður með aukinni áherslu á fjölskylduvænt umhverfi var nýverið opnaður í Öskjuhlíð í Reykjavík og annar slíkur verður opnaður á næstu vikum við Digranesgötu í Borgarnesi. „Viðskiptavinir ON eiga því von á reglulegum fréttum af opnun hleðslustöðva á nýjum staðsetningum sem eru fjölskylduvænni, þægilegri og með fleiri tengjum til að lágmarka bið,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.
 
Stutt er síðan ON tvöfaldaði tengin við Hof og verður stöðin þar áfram í rekstri enda afar vinsæll áningarstaður þegar kemur að hleðslu rafbíla á Akureyri. Þess má geta að hægt er að nálgast ON lykla hjá Berjaya hótelinu og þjónustuver ON er opið allan sólarhringinn ef þörf er á aðstoð við að hefja hleðslu, segir einnig í tilkynningu fyrirtækisins.