Fréttir
Ekkert innanlandsflug en easyJet kom og fór
21.11.2023 kl. 17:30

Ljósmynd: Þórhallur Jónsson
Vél breska flugfélagsins easyJet kom til Akureyrar frá Gatwick flugvelli í London í morgun og hélt sömu leið til baka eins og venja er orðin á þriðjudögum. Það reyndist eina farþegavélin sem kom við í höfuðstað Norðurlands í dag.
Allt innanlandsflug lá niðri vegna veðurs, nema hvað Icelandair fór eina ferð milli Reykjavíkur og Egilsstaða snemma í morgun, og millilandaflug til og frá Keflavíkurflugvelli raskaðist að verulegu leyti. Því var reyndar öllu aflýst þar til síðdegis þegar fjórar vélar héldu vestur um haf.