Fara í efni
Svavar Alfreð Jónsson

Séra Hildur Björk ráðin í Glerárprestakall

Séra Hildur Björk Hörpudóttir, nýr prestur í Glerárprestakalli. Mynd: kirkjan.is.

Biskup Íslands, séra Guðrún Karls Helgudóttir, hefur staðfest ráðningu Hildar Bjarkar Hörpudóttur sem prests í Glerárprestakalli. Valnefnd hafði valið séra Hildi Björk til starfans og biskup hefur nú staðfest það val. 

Um séra Hildi Björk segir í frétt Þjóðkirkjunnar:

Hildur Björk Hörpudóttir er fædd í Reykjavík árið 1980. Hún lauk mag. theol. prófi frá Háskóla Íslands árið 2015 og lauk MA gráðu í praktískri guðfræði frá sama skóla árið 2017. Hún lauk námi árið 2019 frá Clifford College í „Familiy Ministry.“ Hildur Björk er með kennsluréttindi og meistarapróf í mannauðsstjórnun og er einnig með próf í sáttamiðlun og áfallafræðum. Auk þess hefur hún réttindi sem alþjóðlegur jógakennari.

Hildur Björk hefur marghátta starfsreynslu á sviði félags, kirkju og mannúðarmála. Hún hefur meðal annars verið formaður Jafnréttisnefndar þjóðkirkjunnar, átt sæti í stjórn Félags prestvígðra kvenna, setið í stjórn Skálholtsútgáfunnar og verið aðalmaður í stjórn Verndar, félags um fangahjálp.

Hildur Björk var vígð hinn 7. febrúar árið 2016 til þjónustu í Reykhólaprestakalli og var þar sóknarprestur frá 2016-2019. Hún starfaði sem sviðsstjóri fræðslusviðs Biskupsstofu þar til hún tók við starfi sem sóknarprestur í Reykholtsprestakalli í Borgarfirði í apríl árið 2021. Þar starfaði hún fram á mitt þetta ár.

Hildur Björk á fimm börn.

Jólakvöld séra Svavars Alfreðs

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
23. desember 2024 | kl. 12:30

Orðhákar og töfralausnir

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
14. nóvember 2024 | kl. 08:30

Meðhjálparinn

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
07. nóvember 2024 | kl. 10:30

Karlakór í Kalabríu – II

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
30. október 2024 | kl. 11:00

Karlakór í Kalabríu – I

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
29. október 2024 | kl. 09:30

Eitt sinn voru roskin hjón á Syðri-Brekkunni ung

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
27. september 2024 | kl. 17:00