Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri
Garðveisla Hollvina í Lystigarðinum í dag
23.06.2023 kl. 12:00
Margir komu saman í Lystigarðinum á þjóðhátíðardaginn. Þar gæti orðið fjölmennt á ný í dag. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) fagna 10 ára afmæli sínu á þessu ári og af því tilefni blása Hollvinir til garðveislu í Lystigarðinum á Akureyri í dag, föstudag, frá kl. 16.00 til 18.00.
„Við ætlum að eiga ánægjulega stund með sem flestum Hollvinum SAk og öðrum sem vilja koma og gleðjast með okkur,“ segir Hermann Haraldsson, stjórnarmaður í samtökunum.
Boðið verði upp á grillaðar pylsur og hollan drykk með, létt tónlist verði leikin og hoppukastali verður í garðinum fyrir börnin.