Baldvin Þór Magnússon
Kjöri íþróttafólks ársins lýst – allir velkomnir
24.01.2023 kl. 06:00
Aldís Kara Bergsdóttir og Brynjar Ingi Bjarnason urðu hlutskörpust í kjörinu fyrir árið 2021.
Kjöri íþróttafólks ársins á Akureyri verður lýst í menningarhúsinu Hofi síðdegis í dag. Íþróttabandalag Akureyrar og Akureyrarbær bjóða bæjarbúum til athafnarinnar sem hefst klukkan kl. 17.30. Þetta verður í 44. sinn sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður.
Áður en kjörinu verður lýst verða akureyrskir Íslandsmeistarar 2022 kynntir, afhentar verða heiðursviðurkenningar fræðslu- og lýðheilsuráðs og styrkir veittir úr Afrekssjóði Akureyrar til tíu afreksefna.
Tíu efstu í kjöri íþróttakonu Akureyrar 2022
- Aldís Kara Bergsdóttir, listhlaupari, Skautafélagi Akureyrar
- Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Golfklúbbi Akureyrar
- Anna María Alfreðsdóttir, bogfimikona, Akri
- Hafdís Sigurðardóttir, Hjólreiðafélagi Akureyrar
- Jóna M. Arnarsdóttir, blakari, KA
- Rakel Sara Elvarsdóttir, handboltakona, KA/Þór
- Rut Jónsdóttir, handboltakona, KA/Þór
- Salka Sverrisdóttir, Fimleikafélagi Akureyrar
- Sigþóra B. Kristjánsdóttir, hlaupari, Ungmennafélagi Akureyrar
- Valdís Kapitola Þorvarðardóttir, blakari, KA
Tíu efstu í kjöri íþróttakarls Akureyrar 2022
- Alex Cambray Orrason, kraftlyftingamaður, KA
- Alfreð Birgisson, bogfimimaður, Akri
- Baldvin Þór Magnússon, hlaupari, Ungmennafélagi Akureyrar
- Bjarni G. Brynjólfsson, knattspyrnumaður, Þór
- Ívar Örn Árnason, knattspyrnumaður, KA
- Jóhann Már Leifsson, íshokkímaður, Skautafélagi Akureyrar
- Lárus Ingi Antonsson, Golfklúbbi Akureyrar
- Miguel Mateo Castrillo, blakari, KA
- Nökkvi Þeyr Þórisson, knattspyrnumaður, KA
- Óðinn Þór Ríkharðsson, handboltamaður, KA