Fara í efni
Umræðan

Tugir milljarða evra til Pútíns

Frá innrás rússneska hersins í Úkraínu í lok febrúar 2022 hafa ríki Evrópusambandsins greitt um 200 milljarða evra (um 30.600 milljarða króna) fyrir rússneska olíu og gas samkvæmt frétt fréttavefsins Euractiv 14. ágúst. Á sama tíma hefur sambandið og ríki þess stutt Úkraínu um 88 milljarða evra samkvæmt gögnum á vefsíðu þess. Talið er að á þessu ári muni ríkin kaupa rússneska orku fyrir um 30 milljarða evra.

Fram kemur í frétt Euractiv að samanlagður stuðningur Bandaríkjanna, Evrópusambandsins og ríkja þess við Úkraínu hafi numið 185 milljörðum evra frá innrásinni í landið eða lægri upphæð en greiðslur ríkja sambandsins fyrir rússneska orku á sama tíma. Þá segir í fréttinni að þó dregið hafi verulega úr innflutningi á rússneskri orku til ríkjanna séu þau eftir sem áður stærsti viðskiptavinur Rússlands í þeim efnum.

Talsverður hluti ríkja Evrópusambandsins er enn afar háður innfluttu gasi frá Rússlandi. Þar á meðal Austurríki, Ungverjaland, Búlgaría, Ítalía og Frakkland. Rétt er annars að árétta það að tölurnar hér að framan taka einungis tillit til kaupa ríkja sambandsins á orku frá Rússlandi eftir innrásina í Úkraínu en ekki þeirra mörg hundruð milljarða evra sem ríkin greiddu fyrir rússneska orku árum saman fyrir hana.

Refsiaðgerðir ESB ná ekki til gass

Fram kom í frétt þýzka ríkissjónvarpsins DW 29. apríl síðastliðinn að samkvæmt tölum frá Evrópusambandinu hefðu 15% innflutts gass til ríkja þess á síðasta ári verið rússneskt. Vissulega mun minna en 2021 þegar hlutfallið var yfir 40% en eftir sem áður eins og fyrr segir umtalsvert. Þannig flæðir enn gas til ríkja sambandsins um gasleiðslur frá Rússlandi en einnig hefur innflutningur á fljótandi gasi þaðan aukizt.

Hins vegar segja opinberar tölur ekki alla söguna. Töluvert af bæði innfluttu gasi og olíu til Evrópusambandsins kemur þannig upphaflega frá Rússlandi en fer í gegnum önnur ríki og skráð sem þarlend framleiðsla, til dæmis Indland, Tyrkland og Aserbaísjan, eða ríkin selja eigin orku til sambandsins og kaupa rússneska í staðinn. Þá hefur tekjutap rússneskra stjórnvalda orðið mun minna en ella vegna hærra orkuverðs.

Þrátt fyrir að Evrópusambandið hafi ítrekað gripið til ýmissra refsiaðgerða gegn Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu og þó kallað hafi verið eftir því hafa þær ekki ennþá náð til innflutnings á rússnesku gasi. Einungis á olíu og kolum. Enn er þó engu að síður flutt inn talsvert magn af rússneskri olíu í gegnum olíuhreinsistöðvar víða um heim og þá skilgreind sem framleiðsla þess ríkis þar sem stöðvarnar eru staðsettar.

Velmegun reist á rússneskri orku

Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, Charles Michel, viðurkenndi á Twitter-síðu sinni 30. maí 2022 að ríki þess hefðu að miklu leyti fjármagnað hernaðaruppbyggingu og stríðsrekstur Rússa með kaupum á rússneskri orku. Með áformuðum aðgerðum sambandsins til þess að draga úr því hversu háð það væri rússneskri olíu hefði þannig verið „skrúfað fyrir gríðarlega uppsprettu fjármögnunar fyrir stríðsvél þess.“

Hið sama gerði til að mynda Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, í ræðu sem hann flutti á þingi þess 9. marz sama ár. Þrátt fyrir varnaðarorð hefði ekki verið dregið úr kaupunum í aðdraganda innrásarinnar í Úkraínu. „Þegar Rússar réðust inn á Krímskaga töluðum við um að við þyrftum að draga úr því hversu háð við værum rússnesku gasi. Síðan þá höfum við aukið það í stað þess að draga úr því.“

Fram kom í annarri ræðu Borrells 1. marz 2022 að rætt hefði verið um það að draga þyrfti úr kaupum á orku frá Rússlandi í að minnsta kosti tuttugu ár en þess í stað hefði Evrópusambandið sífellt orðið háðara henni. Þá sagði hann í ræðu 10. október sama ár að sambandið hefði reitt sig á Bandaríkin í öryggismálum og reist efnahagslega velmegun sína á kaupum á ódýrri rússneskri orku og ódýrum kínverskum vörum.

Stefna ESB beðið algert skipbrot

„Við héldum að með þessu yrði komið í veg fyrir stríð,“ sagði Sanna Marin, þáverandi forsætisráðherra Finnlands, á fundi sem skipulagður var af hugveitunni Lowy Institute í Sydney í Ástralíu 2. desember 2022 og vísaði þar til þeirrar stefnu að nánari efnahagsleg tengsl við Rússland væru til þess fallin að varðveita friðinn. Sú stefna hefði hins vegar beðið algert skipbrot. Rússneskum stjórnvöldum væri í raun sama um slíkt.

„Ég verð að vera algerlega hreinskilin við ykkur, Evrópusambandið er ekki nógu sterkt eins og staðan er í dag. Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna,“ sagði Marin einnig en ljóst er að ríki þess hafa vegna áratuga vanrækslu hvorki burði til þess að verja sjálf sig né önnur ríki. Finnsk og sænsk stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau hafi sótt um inngöngu í NATO þar sem ekki væri hægt að treysta á sambandið í varnarmálum.

Meðal þess sem stríðið í Úkraínu hefur þannig leitt af sér er að varpa enn betra ljósi en áður á það hversu illa að vígi Evrópusambandið stendur í öryggis- og varnarmálum. Ekki sízt þegar kemur að efnahagsöryggi. Fullyrðingar sem heyrzt hafa, þess efnis að Ísland þurfi að ganga í sambandið til þess að tryggja öryggis- og varnarhagsmuni landsins og þar á meðal efnahagsöryggi þess, standast þannig alls enga skoðun.

Hjörtur J. Guðmundsson er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).

Hver er Akureyri framtíðar?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
13. september 2024 | kl. 17:30

Hverfist allt um lokamarkmiðið

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
10. september 2024 | kl. 13:30

Umhverfisslys í Kjarnaskógi

Elín Kjartansdóttir skrifar
02. september 2024 | kl. 14:30

Gulir og glaðir að störfum

Bragi V. Bergmann skrifar
02. september 2024 | kl. 14:25

Telja Brussel vera langt í burtu

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
01. september 2024 | kl. 06:00

Íbúðabyggð við bílastæði?

Jón Ingi Cæsarsson skrifar
30. ágúst 2024 | kl. 08:30