Fara í efni
Umræðan

Sérprentað upplag í ár með KA-forsíðu

Bókin Íslensk knattspyrna 2024 er gefin út með tveimur mismunandi kápum. Hin hefðbundna er með myndum af Íslandsmeisturum Breiðabliks í kvennaflokki og karlaflokki en einnig prentað sérstakt upplag af bókinni með mynd af bikarmeisturum KA á kápunni. KA-bókin verður eingöngu til sölu hjá KA.
 
Víðir Sigurðsson blaðamaður, höfundur bókarinnar, greinir frá þessu á Facebook í kvöld.
 
„Sögur útgáfa er útgefandi bókarinnar eins og undanfarin fimm ár og kápurnar eru tvær að þessu sinni. Íslandsmeistarar Breiðabliks í kvenna- og karlaflokki eru á kápu hinnar hefðbundnu útgáfu sem fer í almenna sölu en bikarmeistarar KA eru á kápunni í sérprentuðu upplagi sem verður aðeins til sölu hjá KA á Akureyri,“ segir Víðir á Facebook.
 
Einu sinni áður hefur bókin verið prentuð með tveimur mismunandi kápum. Það var árið 2022. Íslandsmeistarar Breiðabliks í karlaflokki prýddu forsíðu hefðbundnu útgáfunnar en á þeirri sérprentuðu var mynd af Íslands- og bikarmeisturum Vals í kvennaflokki.
 
Þetta er 44. árið sem Íslensk knattspyrna er gefin út. „Bókin er sú stærsta til þessa, 304 blaðsíður, sextán síðum stærri en undanfarin ár, enda verður umfang íslenska fótboltans sífellt meira með hverju árinu sem líður. Myndirnar munu vera 452, ef ég hef talið rétt,“ segir Víðir Sigurðsson í færslunni á Facebook.

Lífæð landsbyggðarinnar

Stefán Þór Eysteinsson skrifar
24. nóvember 2024 | kl. 14:30

Nýja stjórnarskráin — Alþingi rjúfi stöðnunina með stjórnlagaþingi

Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
23. nóvember 2024 | kl. 12:00

Útrýming sjóbleikjunnar í Eyjafirði í boði Kleifa fiskeldis

Bessi Skírnisson og Sigmundur E. Ófeigsson skrifa
22. nóvember 2024 | kl. 16:30

Orkumál

Jóna Björg Hlöðversdóttir skrifar
22. nóvember 2024 | kl. 16:00

Hægt með krónunni?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
22. nóvember 2024 | kl. 11:15

Kjalvegur Y

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
22. nóvember 2024 | kl. 10:30