Fara í efni
Umræðan

Mjög alvarlegar ásakanir á mig

Það er stórt orð Hákot var sagt en miklu verra er að vera sakaður um kynferðislega áreitni og ýmsan annan óþverra og eiga karlmenn eðlilega erfitt með að þvo slíkan óþverra af sér, sér í lagi þar sem ég hef aldrei á langri ævi verið sakaður um slíkt fyrr en nú af svikakvendum þremur.

Sorgarumfjöllum sem er að stórum hluta lygi og óhróður hefur verið í gangi í fjölmiðlum nú um hríð og hefur aðallega beinst gegn tveimur heiðursmönnum þeim Jóni Hjaltasyni og Brynjólfi Ingvarssyni fyrsta og þriðja manni á framboðslista Flokks fólksins og í þriðja lagi mér undirrituðum eins og fyrr segir. Það eru upphlaupsmanneskjur og svikakvensur sem eiga hér hlut að máli en þær eru Málfríður Þórðardóttir, Hannesína Scheving og Tinna Guðmundsdóttir.

Tinna ber að ég hafi boðið henni að heimsækja mig að kvöldi og boðið henni gistingu, sem er helber lygi eins og hennar er von og vísa sem ég trúi eftir að fólk hefur komið að máli við mig og lýst henni sem varasamri á geði eftir að hún hafi verið undir handleiðslu geðhjúkrunarfólks en þetta sel ég ekki dýrar en ég keypti. Sannleikurinn er sá að ég sem er kallaður með réttu guðfaðir framboðsins til bæjarstjórnar s.l. vor og á listann þar sem ég ræddi persónulega við allt það góða fólk sem er á listanum utan þessara þriggja svikakvensa. Þó að ég eigi listann var hann borinn fram í nafni Flokks fólksins og ég gerður að kosningastjóra sem svo umrædd Tinna hrakti mig úr starfi eftir að ég hafði útvegað húsnæði fyrir kosningaskrifsofu en það gerði hún með hávaða, svívirðingum og skítkasti á mig og hef ég mörg vitni að framkomu hennar áður en hún rauk á dyr og skellti hurðum. Tinna kom oftar en einu sinni heim til mín að degi til vegna þess að hún sá um alla tölvuvinnu fyrir framboðið. Ég hefði einfaldlega ekki þorað að bjóða henni að kvöldi og alls ekki boðið gistingu þar sem ég hafði margt misjafnt um hana heyrt og sel ekki dýrar en ég keypti eins og fyrr segir e.t.v. minnugur þeirrar umfjöllunar um ýmislegt misyndisfólks sem er ekki heilt á geði og ber fyrir sig jafnvel hnífa.

Hvað Hannesínu varðar hef ég vart hitt ómerkilegri persónu enda svikakvendi. Lýsingar hennar á að hafa sett söfnunarlista inn um bréfalúguna og hlaupið í flýti í burtu vegna hræðslu við mig og símtöl mín við hana sem hún af „manngæsku sinni“ hætti að svars voru frá minni hálfu liður í því að bera klæði á vopnin þegar að ég skynjaði hvernig ástandið var að þróast og þetta er sannleikur málsins. Stundum heimsækja mig konur án hræðslumerkja enda fer vel á með okkur og þær verða ekki varar við kynlífstilburði af minni hálfu.

Málfríði þýðir mér ekki að ræða um eftir að hún á hvæsti á mig á fundi í byrjun að ég væri að ljúga á sig þegar ég hafði orðrétt eftir fundargerð bæjarstjórnar og já fannst vel í lagt að svikakvensurnar þrjár höfðu raðað henni í 8 nefndir, fjórar sem aðal og aðrar fjórar til vara en ég veit ekki hverjar svo endalyktir urðu en í framhaldi af þessu bannaði hún mér að horfa á sig. Þegar ég tala um svikakvendi þá er skýringin sú að þegar ég raðaði fólkinu á framboðslistann þá vissi ég ekki um og þær höfðu ekki fyrir því að segja mér að Málfríður var í heilan mánuð alla kosningabaráttuna að spranga niður á Spáni og Hannesína hafði opinberlega auglýst íbúð sína hér í bæ til leigu á þeim forsendum að hún væri að flytja til Reykjavíkur.

Nú spyr ég ykkur lesendur góðir hvort heilvita fólk geri svona lagað? Í 65 ár hef ég verið með í kosningabaráttu og komið að líklega 16-17 sveitar- og alþingiskosningum en aldrei á langri ævi orðið vitni að þvílíkri sviksemi. Ég vil líka geta þess að svikakvendin útilokuðu mig frá fundarsetu hjá framboðinu og sögðust ekki mæta ef ég mætti, sjálfur guðfaðir framboðsins. Á langri ævi hef ég kynnst fjölmörgum konum og var með sömu ágætu fyrrverandi eiginkonu í tæp 30 ár og þar af giftur henni í 25 ár og á með henni 3 yndislegar dætur og svo 2 flottar afastelpur sem eru læknar í dag og á ekki von á að þær né engin af þessum góðu konum brigsli mér um kynferðisáreiti á einn eða annan hátt.

Að lokum þetta, ég er alvarlega að hugsa um að stefna þessum svikakvensum fyrir meiðyrði og það sem meira er kynferðisofbeldi, sem engin karlmaður hreinsar svo auðveldlega af sér og e.t.v. læt ég þau einnig vera með í stefnunni þau Ingu Sæland og Guðmund Inga sem hafa tekið dyggilega undir ósómann.

Takk fyrir mig.

Hjörleifur Hallgríms er „guðfaðir“ framboðslista Flokks fólksins á Akureyri

Öruggari samgöngur í Fjallabyggð

Ingibjörg Isaksen skrifar
14. nóvember 2024 | kl. 10:35

Hættum að slá ryki í augun á fólki!

13. nóvember 2024 | kl. 19:30

Alvöru byggðastefnu takk!

Logi Einarsson skrifar
13. nóvember 2024 | kl. 06:00

Flug til framtíðar

Arnheiður Jóhannsdóttir skrifar
13. nóvember 2024 | kl. 06:00

Hvenær ætlarðu að flytja heim?

Jón Þór Kristjánsson skrifar
12. nóvember 2024 | kl. 14:50

Vilja miklu stærra bákn

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
12. nóvember 2024 | kl. 14:00