Fara í efni
Umræðan

Dansaðu vindur

Á Íslandi er eftirspurnin eftir raforku mikil. Það er jákvætt að atvinnulífið sé svo blómlegt að umframeftirspurn hafi myndast en neikvætt ef stjórnvöld ná ekki að tryggja að af framkvæmdum verði vegna seinagangs í uppbyggingu á raforkukerfinu. Til mikils er að vinna svo hugmyndir og tækifæri renni ekki úr greipum okkar.

Samkvæmt raforkuspá Landsnets eru líkur á viðvarandi orkuskorti hér á landi næstu árin. Staðan batnar með tilkomu nýrra virkjana sem búið er að ákveða að virkja samkvæmt rammaáætlun. Þeir virkjanakostir munu þó duga ekki til að mæta eftirspurn eftir raforku sem fer stigvaxandi með hverju árinu sem líður. Ekki hefur náðst tilhlýðilegur árangur í orkuöflun, þrátt fyrir það að staðan eins og hún birtist okkur hafi lengi blasað við.

Auðvitað þarf að afla meiri orku, ýta undir að smærri virkjanakostir séu nýttir, að tryggja að vindurinn sé beislaður og svo einnig leita leiða til að nýta betur þá orku sem við höfum til skiptana í dag.

Olíubruni í bakgarðinum

Að nýju verða skerðingar á afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja veruleiki okkar í vetur. Olíubruni í stað grænnar orku verður festur enn frekar í sessi. Með töluverðum afleiðingum fyrir umhverfið og efnahag þjóðarinnar. Í nafni umhverfis- og náttúruverndar hafa einstaklingar og hópar komið í veg fyrir frekari orkuöflun og virðast snúa blinda auganu að afleiðingar aðgerða þeirra kynda undir olíubruna í eigin bakgarði.

Virkjum vindinn

Skiptar skoðanir eru um nýtingu á vindinum til orkuöflunar. Sjálfri þykir mér augljóst að við verðum að virkja vindinn. Það má vel gera hóflega og skynsamlega um landið allt. Vindurinn nýtist vel á móti vatnsaflsvirkjunum til sveiflujöfnunar og á meðan vindur blæs á veturnar er hægt að safna í lónin og bæta þannig vatnsbúskapinn.

Orkumálin má flokka í marga undirflokka. Orkumálin eru efnahagsmál því á meðan við höfum ekki fulla getu til að fullnægja þörfum kerfisins með grænni orku eyðum við tugum milljarða af gjaldeyri þjóðarinnar í kaup á jarðefnaeldsneyti. Orkumálin eru líka umhverfismál því við vitum hver áhrif notkunar á jarðefnaeldsneyti er á náttúruna. Orkumálin eru byggðamál, því án tryggrar raforku munum við ekki ná að treysta byggð um allt land. Orkumálin eru og verða ennþá, lykilmál fyrir þjóðina.

Fólk og fyrirtækin í landinu eiga að geta treyst því að stjórnvöld vinni í þágu heildarinnar. Það er stórt hagsmunamál okkar allra, grundvöllur að áframhaldandi lífsgæðasókn okkar, að orkuframleiðsla sé í vexti og mæti stórhuga framtíðarsýn fyrir Ísland.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir er þingmaður Norðausturkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Hvaðan kemur verðbólgan?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
17. september 2024 | kl. 16:30

Hvert er hlutverk sveitarfélaga í þjóðarátaki gegn ofbeldi meðal barna?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
15. september 2024 | kl. 13:30

Hver er Akureyri framtíðar?

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
13. september 2024 | kl. 17:30

Hverfist allt um lokamarkmiðið

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
10. september 2024 | kl. 13:30

Umhverfisslys í Kjarnaskógi

Elín Kjartansdóttir skrifar
02. september 2024 | kl. 14:30

Gulir og glaðir að störfum

Bragi V. Bergmann skrifar
02. september 2024 | kl. 14:25