Fara í efni
Umræðan

Áherslur ráðherra skipta máli

Ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um að höfuðstöðvar nýrrar umhverfis- og orkustofnunar verði staðsettar á Akureyri felur í sér mikil tækifæri ekki aðeins fyrir okkur íbúa Norðurlands heldur einnig fyrir landsbyggðina alla og íslenskt samfélag. Þetta er rétt og mikilvægt skref hjá ráðherranum í átt að öflugri byggðaþróun þar sem kraftar landsbyggðarinnar eru nýttir til að skapa hagvöxt og blómlegt samfélag í takt við sjálfbærni og ábyrgð. Það er sérstök ástæða fyrir okkur Norðlendinga að gleðjast enda eru þetta stór tíðindi fyrir okkur öll

Það er fagnaðarefni að þekkingarstofnanir festi rætur á landsbyggðinni og eins að störfum án staðsetningar fjölgi og hefur það gerst í tíð núverandi ríkisstjórnar. Það er mikilvægt að haldið verði áfram á sömu braut. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að margar ríkisstofnanir eigi frekar heima á landsbyggðinni og nú eru stigin raunveruleg skref sem skipta máli og því ber sérstaklega að fagna og þakka fyrir.

Atvinnuskapandi áhrif og styrking Norðurlands

Staðsetning stofnunarinnar á Akureyri mun hafa augljós jákvæð áhrif á atvinnulífið í bænum og nágrannasvæðum. Með nýjum störfum í orku- og umhverfismálum gefst íbúum svæðisins tækifæri til að nýta sérhæfða menntun sína og reynslu, en einnig gefur þetta nýja og fjölbreytta möguleika fyrir ungt fólk til að setjast að á Akureyri. Ákvörðunin þýðir ekki að allir núverandi starfsmenn stofnunarinnar verði fluttir nauðungarflutningum til Akureyrar heldur að ný störf verða auglýst hér eða á öðrum starfsstöðvum á landsbyggðinni.

Fjölbreytni atvinnulífsins er grunnforsenda fyrir efnahagslegri sjálfbærni svæða. Með þessari ráðstöfun mun hlutverk Akureyrar sem þungamiðja á Norðurlandi eflast enn frekar.

Skilvirkni og ríkisrekstur

Með ákvörðuninni eru einnig tekin skref í átt að aukinni skilvirkni í ríkisrekstri. Með bættri samgöngutækni og tækifærum til fjarvinnu er augljóst að staðsetning stofnunar utan höfuðborgarsvæðisins mun hafa í för með sér góða þjónustu. Það er hins vegar lykilatriði að við rekstur Umhverfis- og orkustofnunar verði lögð áhersla á hagkvæmni, góða þjónustu og ábyrga nýtingu fjárveitinga.

Tækifæri fyrir græna orku og nýsköpun

Að lokum er þetta ekki aðeins efnahagslega hagstætt fyrir Akureyri og Norðurland, heldur gefur það okkur sem þjóð einstakt tækifæri til að þróa sjálfbærar lausnir á sviði grænnar orku og umhverfisverndar. Ísland hefur alla burði til að vera leiðandi á þessu sviði, og það er rétt að styrkja stoðir sjálfbærrar nýtingar og nýsköpunar á landsbyggðinni þar sem náttúruauðlindir eru innan seilingar.

Við getum skapað framtíð þar sem við bæði njótum efnahagslegs ávinnings af grænni orku og verndum náttúru Íslands fyrir komandi kynslóðir.

Heimir Örn Árnason er formaður bæjarráðs Akureyrar

Bæjarfulltrúar, ­hugsið málið

Jón Ingi Cæsarsson skrifar
21. desember 2024 | kl. 06:00

Jólagjöfin handa tónlistarskólanum

Ólafur Kjartansson skrifar
20. desember 2024 | kl. 06:00

Fögur fyrirheit en fátt um efndir

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
19. desember 2024 | kl. 10:00

„Nei“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
06. desember 2024 | kl. 12:10

Stórhættulegt fordæmi að viðurkenna ekki úrslit kosninga

Stjórnarskrárfélagið skrifar
06. desember 2024 | kl. 12:00

Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka skatta og létta byrði

Jens Garðar Helgason skrifar
29. nóvember 2024 | kl. 06:00