Fara í efni
Umræðan

Af hverju ætti ungt fólk að kjósa Sjálfstæðisflokkinn?

Eftir að hafa skoðað stefnur allra flokka með opnum huga og velt fyrir mér hvaða sýn og gildi samræmast best framtíðarsýn minni hef ég komist að niðurstöðu. Ég vil búa í samfélagi þar sem einstaklingar hafa frelsi til að móta eigin framtíð, samfélag sem verðlaunar frumkvæði, ábyrgð og frjálsa hugsun. Að mínu mati styður stefna Sjálfstæðisflokksins þessa framtíðarsýn best.

Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á frelsi einstaklingsins til að byggja líf sitt á eigin verðleikum, óháð kyni, uppruna eða bakgrunni. Þetta er lykilatriði fyrir mig. Í slíku samfélagi hefur hver einstaklingur tækifæri til að þroska hæfileika sína og ná langt, án þess að þurfa að treysta á stjórnvald eða aukin ríkisafskipti. Hlutverk stjórnvalda á að snúast um að auðvelda fólki lífið, skapa grundvöll fyrir nýsköpun og efla atvinnulíf þar sem tækifærin eru til staðar.

Öflugt atvinnulíf er grunnur að sterku samfélagi. Sjálfstæðisflokkurinn vill leggja áherslu á að styðja við fyrirtæki og frumkvöðla, og það hefur raunveruleg áhrif fyrir okkur unga fólkið: fleiri tækifæri til atvinnu, aukin verðmætasköpun og meiri velferð. Sterkt atvinnulíf skapar störf, styður við fjölbreyttara samfélag og gerir okkur kleift að þróa nýjar hugmyndir og tæknilausnir sem bæta lífsgæði. Með því að efla tekjur ríkissjóðs með verðmætasköpun, en ekki stöðugum skattahækkunum, verður einnig hægt að byggja upp öflugt velferðarkerfi.

En til að árangur náist þarf gott menntakerfi sem tekur mið af þörfum nútímans. Við þurfum að vera betur undirbúin fyrir fjölbreyttan og síbreytilegan vinnumarkað. Sjálfstæðisflokkurinn hefur skýra framtíðarsýn á að bæta menntakerfið og tengja það við atvinnulífið þannig að það nýtist betur okkur ungu fólki og samfélaginu í heild. Þannig tryggjum við að framtíð Íslendinga verði byggð á menntuðu, hæfu og framsæknu fólki sem er reiðubúið að takast á við áskoranir morgundagsins.

Við stöndum einnig frammi fyrir stórum áskorunum næstu árin, ekki aðeins á sviði efnahags og nýsköpunar heldur einnig í orkumálum. Ísland þarf að nýta orkuauðlindir sínar á sjálfbæran hátt og með ábyrgri stjórnun þannig að orkan nýtist okkur, komandi kynslóðum og atvinnulífinu sem byggir á henni. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt að hann getur stýrt hagkerfinu af ábyrgð, stuðlað að stöðugleika og gert langtímalausnir að forgangi.

Kosningarnar 30. nóvember mega ekki leiða til aukinna ríkisafskipta og skattahækkanna sem bitnar mest á ungu fólki. Við erum rétt að stíga okkar fyrstu skref á vinnumarkaði og koma okkur fyrir á húsnæðismarkaði. Við eigum ekki að þurfa að bera þau byrði að greiða stöðugt hærri skatta sem skerða möguleika okkar til að byggja upp eigið líf. Okkur þarf að vera treyst fyrir því að móta eigin framtíð og nýta hugmyndir okkar og ástríðu án þess að ríkisafskipti standi í vegi fyrir okkur.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur aftur á móti skýra framtíðarsýn fyrir ungt fólk og stefnu sem tryggir að Ísland verði áfram sterkt, stöðugt og byggt á sjálfbærum grunni. Með því að styðja einstaklingsfrelsi, öflugan efnahag og sjálfbærni í nýtingu auðlinda tryggir Sjálfstæðisflokkurinn að ungt fólk hafi rödd sem nær lengra en næsta kjörtímabil og byggi á raunverulegum, ábyrgum langtíma lausnum.

Þetta er okkar framtíð, og við eigum að nýta kosningaréttinn til að hafa áhrif á hana. Setjum X við D og byggjum saman samfélag sem styður ungt fólk til að ná langt!

Anton Berg Sævarsson er tvítugur húsasmiður á Eskifirði

Bæjarfulltrúar, hugsið málið

Jón Ingi Cæsarsson skrifar
21. desember 2024 | kl. 06:00

Jólagjöfin handa tónlistarskólanum

Ólafur Kjartansson skrifar
20. desember 2024 | kl. 06:00

Fögur fyrirheit en fátt um efndir

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
19. desember 2024 | kl. 10:00

„Nei“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
06. desember 2024 | kl. 12:10

Stórhættulegt fordæmi að viðurkenna ekki úrslit kosninga

Stjórnarskrárfélagið skrifar
06. desember 2024 | kl. 12:00

Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka skatta og létta byrði

Jens Garðar Helgason skrifar
29. nóvember 2024 | kl. 06:00