Fara í efni
Pistlar

Lokaleikur kvenna í Kjarnafæðimótinu

Þór/KA sendir að jafnaði tvö lið í Kjarnafæðimótið. Í fyrra var það Þór/KA2 sem vann mótið eftir sigur gegn liði 1 í lokaleiknum. Bæði liðin komu svo saman til myndatöku eftir leik.

Kvennadeild Kjarnafæðimótsins í knattspyrnu lýkur loks í kvöld þegar Þór/KA og FHL mætast í Boganum kl. 19. Leikurinn var upphaflega á dagskrá í lok janúar, en var frestað þá vegna veðurs. Það kemur því í ljós í kvöld hvaða lið vinnur Kjarnafæðimótið í ár. 

Segja má að leikurinn í kvöld sé að auki generalprufa hjá báðum félögum áður en keppni í Bestu deildinni hefst. FHL er nýtt lið í efstu deild, en félagið vann Lengjudeildina í fyrra. Þór/KA endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar í fyrra. 

Fyrir þennan lokaleik er Þór/KA í efsta sætinu með sex stig úr tveimur leikjum og sjö mörk í plús. Tindatóll hefur lokið sínum leikjum og er einnig með sex stig, en fimm mörk í plús. Þór/KA2 er með þrjú stig og hefur lokið sínum leikjum, en FHL er án stiga.

  • Kjarnafæðimótið í knattspyrnu, kvennadeild
    Boginn kl. 19
    FHL - Þór/KA

Leikurinn í kvöld er ekki hreinn úrslitaleikur heldur einfaldlega síðasti leikur í deildinni. Það fer svo eftir úrslitum leiksins hvort Þór/KA eða Tindastóll vinnur mótið. Þór/KA2 vann kvennadeild Kjarnafæðimótsins í fyrra.

Þór/KA2, sigurvegarar kvennadeildar Kjarnafæðimótsins 2024.

Hrossafóður í morgunmat

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
19. apríl 2025 | kl. 06:00

Þjálfarinn tæklaður upp í stalla

Orri Páll Ormarsson skrifar
18. apríl 2025 | kl. 10:00

Snípur í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
16. apríl 2025 | kl. 08:45

Hús dagsins: Aðalstræti 66a; Smiðjan

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. apríl 2025 | kl. 20:00

Njóli

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
14. apríl 2025 | kl. 11:00

Uss í görðum

Jóhann Árelíuz skrifar
13. apríl 2025 | kl. 06:00