Baráttan um sjötta sætið í algleymingi
KA tekur á móti toppliði Breiðabliks í dag í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Bæði lið þurfa nauðsynlega á stigunum þremur að halda, jafntefli og eitt stig yrði báðum vonbrigði þannig að nokkuð ljóst er að enginn fer fullkomlega ánægður heim að leik loknum. Flautað verður leiks kl. 16.15 á Greifavelli KA.
Tvær umferðir eru eftir áður en deildinni verður skipt í tvennt og sex efstu liðin halda áfram baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og sæti í Evrópukeppni að ári.
Bardaginn um hið eftirsótta sjötta sæti er æsispennandi – KA komst upp í sjötta sæti tímabundið með sigri á Fram í síðustu umferð en Stjarnan vann HK daginn eftir og skipar nú sjötta sætið með 28 stig, ÍA er sæti ofar með 31 og FH í fjórða sæti með 32.
KA-menn eru í sjöunda sæti með 27 stig og geta mest náð 33 stigum fyrir skiptingu deildarinnar, vinni þeir leikina tvo sem eftir eru. Fram er í áttunda sæti með 26 stig og er neðst þeirra liða sem enn eiga möguleika á að tryggja sér sæti í efri hlutanum en líkurnar eru hverfandi.
Fjórir leikir af sex í dag skipta máli í baráttunni um sæti í efri hlutanum:
- KA - Breiðablik
- FH - Stjarnan
- KR - ÍA
- HK - Fram
Spennan er sannarlega í hámarki og þrennt skiptir KA meginmáli í dag; að leggja Breiðablik að velli, að Stjarnan sigri ekki FH og Akurnesingar fái ekki stig á KR-vellinum.
- Vinni Stjörnumenn í Hafnarfirði verða KA-menn að sigra Blika til eiga enn möguleika á sæti í efri hlutanum fyrir lokaumferðina annan sunnudag.
- Fagni KA-menn sigri í dag og gangi sú ósk þeirra eftir að ÍA tapi fyrir KR skipta úrslit í leikjum Stjörnunnar ekki máli að því leyti að þá verða örlög KA-strákanna í þeirra eigin höndum. Þeir yrðu þá einu stigi á eftir ÍA þegar liðin mætast í lokaumferðinni á Akranesi.
Eins og staðan er núna eru þetta viðureignir í 22. og síðustu umferð fyrir skiptingu sem skipta máli:
- ÍA - KA
- Fram - FH
- ÍA - KA
- Stjarnan - Vestri