Fara í efni
Umræðan

Óumbeðin verkstjórn afþökkuð

Nýlega var tilkynnt hvaða verkefni hefðu orðið fyrir valinu við fyrstu úthlutun úr Fiskeldissjóði. Heildarfjárhæð úthlutunar var um 100 milljónir króna. Alls bárust sjóðnum 14 umsóknir frá sveitarfélögum á Vestfjörðum og Austfjörðum þar sem sótt var um 240 milljónir króna alls. Þrír styrkir fóru til Vestfjarða samtals um 34 milljónir og tveir til Austfjarða samtals rúmar 70 milljónir. Eðli málsins samkvæmt eru ekki allir sáttir með þessa fyrstu úthlutun. Bent hefur verið á að innborganir í sjóðinn á síðasta ári hafi að megninu til komið frá sunnanverðum Vestfjörðum og því skjóti skökku við hve hátt hlutfall styrkja fari austur. Jafnframt endurspegli úthlutunin aðstöðumun milli stærri og minni sveitarfélaga.

Af þessu tilefni er rétt að rifja upp að allt frá því að drög að reglugerð um fiskeldissjóð birtust í Samráðsgátt í lok árs 2019 hafa sveitarfélögin gert alvarlegar athugasemdir við fyrirkomulagið og raunar gjaldtöku af fiskeldisstarfsemi í heild sinni. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga sem unnin var í samráði við Samtök sjávarútvegssveitarfélaga dags. 8. janúar 2020 segir: „Í upphafi telur Samband íslenskra sveitarfélaga óhjákvæmilegt að halda því til haga að við setningu laga um gjaldtöku af fiskeldi lagðist það ásamt Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga eindregið gegn þeirri leið að stofna sérstakan sjóð til að ráðstafa hluta tekna ríkisins af gjaldtöku á fiskeldisstarfsemi. Á allan hátt væri eðlilegra að sveitarfélögin fengju í sinn hlut beina hlutdeild í tekjum af slíkri starfsemi til að standa undir nauðsynlegri innviðauppbyggingu.“

Í ljósi þeirra stjórnarmyndunarviðræðna sem nú eiga sér stað er gott til þess að vita að samkvæmt kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins er mikilvægt að: „…regluverk um fiskeldi verði endurskoðað til að tryggja sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum. Skipting þeirra tekna milli ríkis og sveitarfélaga verði sanngjörn.“ Í stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins frá því í ágúst segir ennfremur: „Fiskeldi er vaxandi hluti íslensks sjávarútvegs og gefur aukin tækifæri til verðmætasköpunar. Skoðað verði með hvaða hætti megi auka beina hlutdeild sveitarfélaga að tekjum í greininni.“

Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga sem vísað er í hér að fram segir einnig: „Að áliti sambandsins er það fyrirkomulag að úthluta fjármunum til sveitarfélaga í gegnum Fiskeldissjóð einungis tímabundið ástand og stefna beri að því að sveitarfélög fái sem fyrst beinar tekjur af fiskeldisstarfseminni.“

Af áherslum meirihluta stjórnarflokkanna að dæma hafa sveitarfélögin sem um ræðir engu að kvíða. Fiskeldissjóði er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Kjörnum fulltrúum á Vestfjörðum, Austfjörðum og mögulega við Eyjafjörð er fyllilega treystandi til að vega og meta hvar uppbyggingar er þörf innan þeirra sveitarfélaga og afþakka óumbeðna verkstjórn í þeim efnum.

Gauti Jóhannesson er forseti sveitarstjórnar Múlaþings.

Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka skatta og létta byrði

Jens Garðar Helgason skrifar
29. nóvember 2024 | kl. 06:00

Njál Trausta áfram sem þingmann okkar í Norðausturkjördæmi

Inga Stella Pétursdóttir, Elín Dögg Gunnars Väljaots, Ólöf Hallgrímsdóttir, Gunnlaugur Eiðsson, Arngrímur B. Jóhannsson og Guðmundur Bjarnason skrifa
28. nóvember 2024 | kl. 21:30

Sögulegt tækifæri

Logi Einarsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Sæunn Gísladóttir og Sindri S. Kristjánsson skrifa
28. nóvember 2024 | kl. 13:30

Ágæti kjósandi – Það er komið að þér

Sigurjón Þórðarson skrifar
28. nóvember 2024 | kl. 13:15

Nei þeir mega það ekki!

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar
28. nóvember 2024 | kl. 13:00

Hugvekja á Ýli

Hildur María Hansdóttir skrifar
27. nóvember 2024 | kl. 15:30