Fara í efni
Fréttir

Hollvinir SAk gefa öndunarmælingatæki

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) gáfu rannsóknarstofu lífeðlisfræðideildar SAk á dögunum nýtt öndunarmælingartæki.

Nýja tækið (Vintus One) gefur möguleika á mismunandi tegundum öndunarmælinga, s.s. fráblástursmælingu, loftdreifiprófi, mælingu á rúmmáli lungna og sveiflumælingu.

Aukin þjónusta – færri ferðir suður

„Með nýja tækinu getum við betur samræmt lungnarannsóknir á SAk við þær sem eru gerðar á Landspítala og bætt samstarf við sérfræðinga sem eru staðsettir þar. Með tilkomu tækisins getum við aukið þjónustu við einstaklinga á upptökusvæði SAk sem annars þyrftu að fara suður í rannsóknir. Lungnasérfræðingar sem eru staðsettir í Reykjavík geta nú fengið rannsóknir gerðar hér en það gefur jafnvel möguleika á auknu fjareftirliti þegar það hentar“ segir Jónína Þuríður Jóhannsdóttir, yfirlífeindafræðingur á rannsóknarstofu í lífeðlisfræði á SAk.

Á myndinni frá vinstri: Telma Hrund Davíðsdóttir, sjúkraliði, Gunnar Þór Gunnarsson, yfirlæknir, Jóhannes G. Bjarnason, formaður Hollvina, Hermann Haraldsson, gjaldkeri Hollvina, Jónína Þuríður Jóhannsdóttir, yfirlífendafræðingur á rannsóknarstofu í lífeðlisfræði á SAk, Jóhann Rúnar Sigurðsson, varaformaður Hollvina og Birna Björgvinsdóttir, líftæknir á rannsóknarstofu í lífeðlisfræði á SAk.