Fara í efni
Fréttir

Hollvinir komu færandi hendi á geðdeild SAk

Við sjónvarpið sem Hollvinir gáfu geðdeild SAk. Frá vinstri: Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri rekstrar og klínískrar stoðþjónustu SAk, Margrét Árnadóttir frá Hollvinum, Jóhann Rúnar Sigurðsson, varaformaður Hollvina, Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk, Hermann Haraldsson, gjaldkeri Hollvina, Bjarni Jónasson, meðstjórnandi Hollvina, Jóhannes G. Bjarnason, formaður Hollvina, Bernard Hendrik Gerritsma, deildarstjóri geðdeildar og Valborg Lúðvíksdóttir, aðstoðardeildarstjóri geðdeildar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri færðu á dögunum legudeild geðdeildar stofnunarinnar rausnarlegar gjafir í formi húsgagna og stórt sjónvarp að auki. Um er að ræða stóla og fjögur borð í tvö viðtalsherbergi, stofuborð í dagstofu, tvo hægindastóla – svokallaða lazy boy – í öryggisenda deildarinnar og sjónvarp fyrir öryggisstofuna.

„Undanfarið hafa umfangsmiklar breytingar verið gerðar á legudeildinni með það að markmiði að bæta aðstöðu bæði sjúklinga og starfsfólks. Með tilkomu húsgagnanna frá Hollvinum má segja að umbæturnar hafi náð enn lengra,“ segir í tilkynningu frá SAk

Jóhannes G. Bjarnason, formaður Hollvina, mátar annan hægindastólinn – Lazy boy – sem Hollvinir færðu geðdeildinni.

„Í verkefnið fengum við Húsgagnahöllina sem veitti veglegan afslátt af húsbúnaði ásamt því að Heimilistæki gáfu veglegan afslátt af sjónvarpi,“ segir í tilkynningu frá Hollvinum. „Eining Iðja, Félag verslunar og skrifstofufólks á Akureyri, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Byggiðn og Félag málmiðnaðarmanna Akureyri gáfu sjónvarpið. Höldur lánaði bíl til flutninga og verðmæti hátt á aðra milljón króna. Hollvinasamtökin vilja leggja öllum deildum lið og mismunandi er hvað deildunum hentar. Húsbúnaður í nýju húsnæði deildarinnar þarfnaðist uppfærslu og meiri hlýleika og þakka Hollvinasamtökin öllum þeim sem aðstoðuðu með aðkomu að þessu verkefni á einn eða annan hátt.“

Stólar og borð sem Hollvinir gáfu geðdeildinni til nota í viðtalsherbergjum.