Fara í efni
Umræðan

Ég styð Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem formann – en hvers vegna?

Það eru mikil tímamót framundan hjá Sjálfstæðisflokknum. Við munum kjósa okkur nýja forystu og í kjöri eru nú þegar tvær frábærar konur. Það er mjög jákvætt og fellur það í skaut okkar ágætu landsfundarfulltrúa, að velja á milli þeirra. Ég styð Guðrúnu Hafsteinsdóttur, en hvers vegna?

Ég þekkti afar vel föður Guðrúnar, Hafstein Kristinsson heitinn, fyrrverandi oddvita Sjálfstæðisflokksins í Hveragerði og stofnanda Kjöríss. Heiðarleiki og sanngirni voru hans aðalsmerki og ég veit af kynnum mínum við Guðrúnu að þau eru það einnig hjá henni.

Guðrún hefur langa reynslu af ýmiss konar störfum í þágu atvinnulífsins, sem formaður Samtaka iðnaðarins, varaformaður Samtaka atvinnulífsins og formaður Landssamtaka lífeyrissjóða. Auk þess hefur hún komið að rekstri fjölskyldufyrirtækisins í áratugi. Þessi víðtæka reynsla úr atvinnulífinu er gulls ígildi fyrir formann Sjálfstæðisflokksins.

Guðrún stóð sig mjög vel sem dómsmálaráðherra, þann stutta tíma sem hún var í því ráðuneyti. Það var ekki hávaðinn sem einkenndi hennar störf þar heldur lét hún verkin tala. Hún lét þó engan vaða yfir sig í almennri né þinglegri umræðu. Það sýnir styrk hennar sem stjórnanda og pólitískan fulltrúa landsmanna.

Guðrún er ekki fædd með silfurskeið í munni heldur hefur hún þurft að vinna fyrir sér frá unga aldri. Hún er mikil fjölskyldukona og hefur marga fjöruna sopið. Lífið er mismunandi hjá okkur öllum og ekki alltaf einfalt eins og flestir landsmenn hafa reynt um ævina.

Guðrún vill báknið burt og mun stuðla að því eftir bestu getu. Frelsi með ábyrgð er ein af grundvallarstoðum Sjálfstæðisflokksins og þar vill hún vera. Þar vilja sjálfstæðismenn líka vera.

Guðrún nær vel til ungs fólks sem og þeirra sem eldri eru og það er mikill kostur. Hún gefur sig að þeim sem hún talar við hverju sinni en það er eiginleiki sem ekki er öllum gefinn. Við getum því búist við að með því móti takist henni að laða unga fólkið að flokknum og eldri borgarar sem stutt hafa flokkinn, en snúið tímabundið frá honum, komi til baka. Það þarf flokkurinn sannarlega núna.

Guðrún er fædd á landsbyggðinni og býr þar ennþá. Ég held að það væri gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fá slíkan einstakling sem formann. Flestir formenn Sjálfstæðisflokksins hafa komið af höfuðborgarsvæðinu og kominn tími til að breyta því.

Guðrún er á góðum aldri, með mikla víðtæka lífsreynslu, hefur verið lengi á vinnumarkaði bæði sem launþegi og stjórnandi og er því frábær kandidat í formannsembættið hjá Sjálfstæðisflokknum. Þess vegna styð ég hana í það embætti um næstu helgi. Það ættu aðrir ágætir landsfundarfulltrúar líka að gera.

Karl Guðmundsson er eldri borgari á Akureyri.

Glitrum saman – nýsköpun í heilbrigðisþjónustu fyrir einstök börn á landsbyggðinni

Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir skrifar
28. febrúar 2025 | kl. 06:00

Eitt lítið Naustahverfi á Tjaldsvæðisreitinn?

Þórdís Björg Valdimarsdóttir skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 20:45

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Værum hluti af svari ESB innan þess

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
23. febrúar 2025 | kl. 11:00

Útvistun kjarasamninga

Björn Valur Gíslason skrifar
22. febrúar 2025 | kl. 14:30

Töfrar tónlistar

Þórarinn Stefánsson skrifar
21. febrúar 2025 | kl. 10:30