Fara í efni
Umræðan

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Undanfarin ár hefur Akureyrarflugvöllur gengið í gegnum umfangsmikla uppbyggingu og loksins hefur reglulegt millilandaflug hafist frá Norðurlandi sem er virkilega mikilvæg þróun fyrir svæðið og íbúa þess. Þessi uppbygging markar tímamót og hefur sýnt hversu mikil aukning á lífsgæðum og ferðamöguleikum þetta er. En á sama tíma vaknar spurning: Af hverju er það breskt lággjaldaflugfélag sem rýfur einangrunina en ekki íslenskt?

Þegar EasyJet hóf vetraráætlunarflug frá Akureyri til London í október 2023, var það stórt skref fyrir landshlutann. Nú í haust, aðeins ári síðar, hefur félagið aukið tíðni sína og bætt við áfangastaðnum Manchester. Áhrifin eru óumdeilanleg: Ferðaþjónusta á Norðurlandi blómstrar, heimamenn hafa betri aðgang að alþjóðaflugi og lífsgæði íbúa hafa stórbatnað.

Þetta vekur spurningu sem við verðum að spyrja: Hvers vegna hefur Icelandair ekki gert slíkt hið sama? Ef það er hagkvæmt fyrir erlendan keppinaut að fljúga til Akureyrar, hvernig getur þjóðarflugfélagið okkar, ef svo má kalla, réttlætt þetta aðgerðaleysi?

Það er enginn að krefjast daglegs flugs til Parísar, Berlínar og Rómar. En beint flug tvisvar í viku til Kaupmannahafnar væri til að mynda öflug breyting – bæði fyrir ferðamenn og heimamenn.

Hugsum okkur að fara í helgarferð til Kaupmannahafnar. Í dag þarf fólk utan af landi að keyra fjóra og hálfan tíma til Reykjavíkur, mögulega gista eina nótt, fljúga þaðan og lenda í sömu kröfu um fyrirhöfn á leiðinni til baka. Þetta er tímafrekt, kostnaðarsamt og gerir skyndiferðir nær ómögulegar.

Og hvað með Norðlendinga sem búa erlendis? Að kíkja heim í skamman tíma er verkefni sem krefst umtalsverðrar skipulagningar. Það þarf að panta flug til Keflavíkur, glíma við óþjálar samgöngur til og frá Keflavík og svo mögulega greiða jafn mikið fyrir flugið norður og fyrir alþjóðaflugið sjálft. Þetta er kerfi sem vinnur gegn bæði heimförum Íslendinga og komum erlendra ferðamanna til Norðurlands.

Þetta er einfaldlega ekki í takt við nútímann.

Icelandair hefur stundum varið afstöðu sína með því að segja að slíkar ferðir væru óhagkvæmar eða umhverfislega óskynsamlegar. En þær röksemdir standast ekki skoðun. Það þarf ekki að senda tómar vélar norður til að halda úti millilandaflugi frá Akureyri. Lausnirnar liggja í einfaldri leiðarsetningu:

  • Flug frá Keflavík til Kaupmannahafnar
  • Kaupmannahöfn til Akureyrar
  • Frá Akureyri til Kaupmannahafnar
  • Og loks frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur

Sú lausn minnkar umhverfisáhrif, hámarkar nýtingu flugvéla og opnar Norðurland fyrir nýjum möguleikum.

Það er ekki spurning um hvort eftirspurnin sé til staðar – hún er það. Spurningin er hvort Icelandair ætli sér að vera þjóðarflugfélag allra landsmanna, eða aðeins höfuðborgarsvæðisins.

Það er kominn tími til að félagið stígi fram. Norðlendingar eiga betra skilið.

Birgir Orri Ásgrímsson er háskólanemi, búsettur í Osló

Hörmungarástand við Lundargötu

Jón Ingi Cæsarsson skrifar
11. apríl 2025 | kl. 10:45

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis á erindi við þig

Pétur Þór Jónasson og Inga Bára Ragnarsdóttir skrifa
08. apríl 2025 | kl. 11:45

Samfélagssáttmáli íbúa um samfélagsmiðlanotkun- og skjátíma barna

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
07. apríl 2025 | kl. 19:00

Það er vá fyrir dyrum – Börnin okkar

Svava Þ. Hjaltalín skrifar
06. apríl 2025 | kl. 20:30

Hin raunverulega byggðastefna

Jón Þór Kristjánsson skrifar
05. apríl 2025 | kl. 06:00