Fara í efni
Íþróttir

UFA-ungmenni: Íslandsmet og 16 gull

Tobias Þórarinn Matharel setti Íslandsmet í 100 metra grindahlaupi 15 ára, auk þess að verða Íslandsmeistari í þremur einstaklingsgreinum og einu boðhlaupi. Myndir: UFA
Ungmennafélag Akureyrar (UFA) átti marga verðuga fulltrúa á Meistaramóti Íslands í flokki 15-22ja ára sem haldið var á Selfossi 21.-23. júní. Keppendur frá UFA unnu til 37 verðlauna, næstflest allra félaga sem sendu keppendur á mótið. UFA-keppendurnir unnu 16 gullverðlaun, 11 silfur og tíu brons. UFA varð að auki stigameistari félagsliða í flokki 15 ára drengja, 18-19 ára drengja og 20-22ja ára kvenna. Þá varð UFA í 2. sæti í stigakeppni mótsins með 231 stig. 
 


Öflugur hópur keppenda og þjálfara UFA á Meistaramóti Íslands 15-22ja ára í frjálsum íþróttum. 

Íslandsmet
  • Tobias Þórarinn Matharel setti Íslandsmet í 100 metra grindahlaupi 15 ára

Íslandsmeistarar

  • Emelía Rán Eiðsdóttir í kringlukasti 15 ára
  • Elena Soffía Ómarsdóttir í spjótkasti 16-17 ára
  • Alexander Breki í kúluvarpi og kringlukasti 18-19 ára
  • Garðar Atli Gestsson í spjótkasti 15 ára
  • Tobias Þórarinn Matharel í langstökki, þrístökki, 100 metra grindahlaupi og 300 metra grindahlaupi
  • Petur Fridrik í 100 metra hlaupi 16-17 ára
  • Sigurlaug Anna Sveinsdóttir í 400 metra hlaupi 18-19 ára
  • Aþena Björk Ómarsdóttir í 100 metra og 200 metra hlaupi 20-22ja ára
  • 4x100 metra boðhlaup 20-22ja ára stúlkna - Aþena Björk Ómarsdóttir, Sigurlaug Anna Sveinsdóttir, Guðrún Hjartardóttir og Elena Soffía Ómarsdóttir
  • 4x100 metra boðhlaup 18-19 ára drengja - Alexander Breki, Robert Mackay, Petur Fridrik og Brynjar Páll Jóhannsson
  • 4x100 metra boðhlaup 15 ára drengja - Kristófer Sigurðsson, Hreggviður Örn Hjaltason, Tobias Þórarinn Matharel og Arnar Harðarson


UFA-drengir unnu stigakeppni í flokki 15 ára drengja.