Fara í efni
Íþróttir

Stjarnan norður á kostnað KA til að spila 2x10 mínútur

KA-strákarnir í C-liði 4. flokks eftir að þeir sigruðu Stjörnuna á KA-vellinum 14. september.

Óvenjuleg knattspyrnukeppni fer fram á KA-svæðinu kl. 15.00 á miðvikudaginn. Þar munu 12 og 13 ára drengir í KA og Stjörnunni úr Garðabæ leika í 2 sinnum 10 mínútur til þess að fá úr því skorið hvort félagið sigrar í keppni C-liða 4. flokks á Íslandsmótinu.

Liðin mættust á KA-vellinum 14. september í lokaleik mótsins. Staðan var 3:3 eftir venjulegan leiktíma en KA sigraði í vítaspyrnukeppni.

Stjarnan kærði úrslit leiksins til aga- og úrskurðarnefndar Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) þegar Garðbæingar áttuðu sig á þeim mistökum dómarans að framlengingin var 2x5 mínútur en ekki 2x10 mín. eins og reglugerð segir til um, auk þess sem hvort lið fékk 3 spyrnur í vítakeppninni en ekki 5, eins og vera ber skv. sömu reglulegerð.

  • Stjarnan krafðist þess að úrslit leiksins yrðu dæmd ógild og að framlenging (og vítaspyrnukeppni ef til hennar kæmi) yrði spiluð aftur á heimavelli Stjörnunnar í Garðabæ
  • Til vara gerði Stjarnan sömu kröfu nema hvað leikið yrði á heimavelli KA og KA skuli þá greiða ferðakostnað Stjörnunnar.

Í kæru lýsir Stjarnan málavöxtum á þessa leið:

  • Þegar venjulegum leiktíma lauk og áður en framlenging hófst yfirgaf dómarinn leikstað og afhenti öðrum flautuna og þar með stjórn leiksins.
  • Sá sem tók við flautunni þekkti ekki reglugerð um knattspyrnumót og lét framlengingu vera 2 sinnum 5 mínútur í stað 2 sinnum 10 mínútur þrátt fyrir mótbárur og útskýringar frá þjálfarateymi Stjörnunnar og braut þar með viðkomandi reglugerð.
  • Áfram var jafnt eftir téða framlengingu og lét viðkomandi dómari þá vítaspyrnukeppnina vera 3 spyrnur á hvort lið í stað 5 spyrna, aftur þrátt fyrir mótbárur og útskýringar þjálfarateymis Stjörnunnar.

KA koma eftirfarandi á framfæri við aga- og úrskurðarnefnd KSÍ:

  • Rangt er hjá Stjörnunni að dómarinn hafi yfirgefið svæðið eftir venjulegan leiktíma.
  • Dómarinn var viðstaddur eftir að venjulegum leiktíma lauk og tók sjálfur ákvörðun um lengd framlengingar, sem var ákveðin 2x5 mínútur í stað 2x10 mínútur.
  • Dómarinn upplýsti bæði þjálfarateymi áður en framlenging hófst um þessa ákvörðun.
  • Engin mótmæli eða mótbárur komu fram frá þjálfarateymi Stjörnunnar. Það sést á myndbandsupptöku.
  • Dómarinn þurfti að yfirgefa leikstað þar sem hann var hluti af dómarateymi í leik sem byrjaði á Dalvík kl. 16:30 og fól öðrum að taka við hlutverki dómara.
  • Þótt framkvæmd leiksins hafi ekki verið í samræmi við reglugerð KSÍ bitnuðu mistök dómara á báðum liðum.

Í niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar KSÍ segir meðal annars:

  • Óumdeilt er að dómari leiksins upplýsti um og ákvað að framlenging skyldi vera 2 x 5 mínútur. Að henni lokinni fór fram vítaspyrnukeppni þar sem hvort lið tók aðeins þrjár spyrnur til að ráða fram úrslit í leiknum.
  • Samkvæmt reglugerðar KSÍ skal leiktími framlengingar í 4. flokki karla vera 20 mín (2 x 10 mín). Sé enn jafnt að lokinni framlengingu skal fara fram vítaspyrnukeppni þar sem hvort lið tekur fimm spyrnur.
  • Ef staðan er jöfn þegar hvort lið hefur tekið fimm spyrnur, skal spyrnum haldið áfram þar til annað liðið hefur skorað marki meira en hitt úr jafn mörgum spyrnum.
  • Að mati aga- og úrskurðarnefndar eru ákvæði knattspyrnulaganna og reglugerðar ófrávíkjanleg og því ljóst að dómarinn gerði mistök varðand leiktímann. Engu breytir hvort mistök dómara hafi haft áhrif á báða aðila eða hafi verið framkvæmd með vitund beggja liða.
  • Fallist er á kröfu Stjörnunnar:
  • Framlengingin skal fara fram að nýju, nú í 2 x 10 mínútur. Verði jafnt eftir framlengingu skal fara fram vítaspyrnukeppni, 5 spyrnur á hvort lið.
  • Leikið skal á heimavelli KA.
  • KA er gert að greiða ferðakostnað Stjörnunnar til Akureyrar og heim aftur. Tekið er fram að gæta skuli hagkvæmni í ferðakostnaði. Hann getur „aldrei numið hærri upphæð en sem nemur fargjaldi frá viðurkenndu rútufyrirtæki á umræddri leið. Sé ferðakostnaður hærri skal aðkomulið bera kostnað af mismun.“