Fjórir kraftlyftingamenn úr KA Íslandsmeistarar
Aníta Rún Bech Kajudóttir varð Íslandsmeistari í -63 kg flokki. Hún lyfti 255 kg í samanlögðu og bætti sig bæði í bekkpressu og réttstöðulyftu. Aníta er aðeins 19 ára gömul.
Friðrik Alvin Grankvist átti mjög góðan dag, fékk allar lyftur gildar og náði þriðja sæti í -93 kg flokki með 517,5 kg í samanlögðu. Líkt og Aníta er Friðrik 19 ára.
Viktor Samúelsson varð Íslandsmeistari í 105 kg flokki.
Viktor Samúelsson varð Íslandsmeistari í 105 kg flokki og átti frábæran dag. Hann fékk allar lyftur gildar og sló mörg Íslandsmet, bæði í hnébeygju, réttstöðulyftu og samanlögðu – 818 kg. Þá varð Viktor í öðru sæti í stigakeppni mótsins, skammt á eftir fyrsta sætinu.
- Skemmtilegt spjall við Viktor á mbl.is – Átti Íslandsmetið í um það bil mínútu
Þorsteinn Ægir Óttarsson varð Íslandsmeistari í 120+ flokki þar sem hann lyfti 780 kg í samanlögðu.
- Munurinn á klassískum kraftlyftingum og búnaðarlyftingum, sem svo eru kallaðar, er sá að í þeim klassísku má ekki notast við neinn aukabúnað eins og bekkpressuboli eða stálbrækur. Hnévafningar sem hægt er að herða að eins og með frönskum rennilás eru einnig bannaðir. Aðeins má nota hnéhólka sem ekki er hægt að herða og vafninga fyrir úlnlið.