Fara í efni
Fréttir

Vilja leggja göngustíg að Hraunsvatni

Hluti af tillögum verkefnastjórnar, sem mynduð var að beiðni mennta- og viðskiptaráðherra vegna uppbyggingar í Hrauni í Öxnadal, snúa að fólkvanginum. Er m.a. stungið upp á því að gerður verði einn góður 3 km göngustígur upp að Hraunsvatni sem verði aðgengilegur sem flestum. Mynd: SNÆ

Til stendur að leggja göngustíg upp að Hraunsvatni sem aðgengilegur verður sem flestum. Þetta er ein af mörgum tillögum verkefnastjórnar sem nýlega skilaði inn hugmyndum sínum varðandi uppbyggingu að Hrauni í Öxnadal til Mennta- og viðskiptaráðuneytisins.

Margir gestir leggja leið sína að Hrauni í Öxnadal, enda heillar náttúran í kringum Hraun. Árið 2007 var stór hluti jarðarinnar friðlýstur og gerðu Hörgársveit, Umhverfisstofnun og Menningarfélagið Hraun með sér samning um umsjón og rekstur fólkvangsins á meginhluta jarðarinnar.

Hraunsvatn liggur í 492 m hæð yfir sjó. Vinsælt er að ganga þangað frá Hrauni í Öxnadal. Í Fátæku fólki getur Tryggvi Emilsson þess að skrímsli eigi að búa í vatninu Mynd: SNÆ

Við viljum vernda svæðið fyrir ágangi en samt viljum við að að það sé aðgengilegt þeim sem vilja fara um og njóta mikilfenglegrar náttúru þess.

Vinsælt að ganga að vatninu

Vinsældir gönguleiðar frá Hrauni og upp að Hraunsvatni hafa aukist mjög eftir að gönguleiðin frá Hálsi var ekki lengur aðgengileg almenningi. Að sögn Hönnu Rósu Sveinsdóttur, formanns Menningarfélagsins Hrauns, er því brýnt að fara í stígagerð á svæðinu því nú þegar eru farnir að myndast slóðar þvers og kruss um landsvæðið. Segir hún að hluti af tillögum verkefnastjórnarinnar, sem mynduð var að beiðni mennta- og viðskiptaráðherra vegna uppbyggingar í Hrauni, snúi einnig að fólkvanginum, m.a. að gerður verði einn góður 3 km göngustígur upp að Hraunsvatni sem verði aðgengilegur sem flestum.

„Við viljum vernda svæðið fyrir ágangi en samt viljum við að það sé aðgengilegt þeim sem vilja fara um og njóta mikilfenglegrar náttúru þess. Fyrsta skrefið er að gera svokallaða stjórnunar- og verndaráætlun fyrir fólkvanginn. Sú vinna er að hefjast og mun skila áætlun til þriggja ára,“ segir Hanna Rósa og bætir við að hugmyndir séu uppi um að stika fleiri leiðir um fólkvanginn, gera áningarstaði og setja upp upplýsingaskilti. Allt á þetta að vera lágstemmt þannig að náttúran fái að njóta sín. 

Áðurnefndar tillögur verkefnastjórnarinnar fela að öðru leyti í sér metnaðarfulla uppbyggingu að Hrauni í Öxnadal sem allar hverfast um að heiðra þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson og vekja athygli á starfi hans sem náttúrufræðings, skáldi, hugsuði og orðasmiði. Akureyri.net hefur áður greint frá því máli.

 

Í tengslum við friðlýsingu á hluta af jörðinni Hrauni sem fólkvangs árið 2007 voru á sínum tíma stikaðar nokkrar gönguleiðir um svæðið. Svæðið er vinsælt meðal útivistarfólks. Mynd:SNÆ


Vinsælt er að hefja göngu upp að Hraunsvatni frá Hrauni. Til stendur að koma þar upp gestastofu með salernum, kaffisölu og ýmsum fróðleik er tengist Jónasi Hallgrímssyni.  Mynd: Fornleifastofnun Íslands