Fara í efni
Fréttir

Þorsteinn Már hafnar nýjum ásökunum

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherji. Mynd af vef Samherja.

Heimildin greindi frá því í dag að tækni­mönn­um á veg­um hér­aðssak­sókn­ara hefði tekist að end­ur­heimta á ann­að þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, forstjóra Samherja, og Jó­hann­es­ar Stef­áns­son­ar, á með­an sá síð­ar­nefndi var við störf á vegum fyrirtækisins í Namib­íu, og að skilaboðin drægju upp allt aðra mynd en forstjórinn hefði málað. Þorsteinn hafnar þessu alfarið í bréfi til starfsmanna Samherja í dag.

Bréf Þorsteins var birt á heimasíðu Samherja eftir hádegi. Það er svohljóðandi:

Ágæta samstarfsfólk.

Heimildin birti í dag umfjöllun um mál sem hefur verið til rannsóknar í fimm ár. Þar er því haldið fram að upplýsingarnar varpi nýju ljósi á málsatvik. Svo er ekki. Umrædd umfjöllun í Heimildinni hnikar ekki, eða hrekur, fyrri yfirlýsingar mínar um málið. Þær standa óhaggaðar.

Mér þykir mjög miður og algjörlega óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki fyrirtækisins sé haldið í spennitreyju með réttarstöðu sakbornings í fimm ár án tilefnis. Miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir virðist mega reikna með að þannig verði það áfram. Þá er útlit fyrir að ekkert tillit verði tekið til þess mikla álags sem slík réttarstaða hefur fyrir heiðarlegt og samviskusamt fólk og fjölskyldur þeirra.

Eins og ég hef áður sagt þá munum við verjast þessum ásökunum af fullum þunga en málið verður ekki rekið í fjölmiðlum.

Aðalatriðið er að þið látið ekki þessa umfjöllun raska vinnufriðnum og haldið áfram ykkar góðu verkum. Vikan sem er að líða gekk vel, tíðarfarið hefur verið gott, skipin fiska vel, vinnslurnar eru öflugar að vanda og þá borðaði fiskurinn vel í eldinu.

Bestu kveðjur og góða helgi,

Þorsteinn Már