Fara í efni
Fréttir

Þrír Samherjatogarar aflahæstir í fyrra

Björg EA-7, Björgúlfur EA-312 og Kaldbakur EA-1. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Systurskip Samherja, Kaldbakur EA 1, Björgúlfur EA 312 og Björg EA 7 eru í þremur efstu sætum yfir aflahæstu togara ársins 2024 hér landi. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins í morgun, þar sem vitnað er í aflafrettir.is, sem tekur saman veiðar íslenskra skipa.

Aflahæsti togarinn var Kaldbakur, afli skipsins var 8.933 tonn. Í öðru sæti var Björgúlfur, með 8.687 tonn og í þriðja sæti var Björg með 8.186 tonn á síðasta ári.

Togarar Samherja sjá landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík fyrir hráefni. Þar starfa alls um 300 manns en sjómenn á skipum Samherja eru samtals um 200, enda tvöföld áhöfn á hverju skipi.

Veiðar, vinnsla og sala afurða fara saman

Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja segir að systurskipin hafi reynst afskaplega vel. „Í sjálfu sér er ekki sérstakt markmið að vera í efstu sætum á þessum listum, verkefnið er fyrst og fremst að koma á tilsettum tíma með góðar afurðir til vinnslu. Hráefnisstýring er stór þáttur í starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja, þar sem veiðar, vinnsla og sala afurða fara saman,“ segir Kristján á vef Samherja. „Til þess að sjá vinnslunum fyrir hráefni, þurfa skipin að landa sex til sjö sinnum í viku, sem þýðir í raun að þau landa stundum tvisvar sinnum í sömu vikunni. Stýring veiða getur því á köflum verið nokkuð flókin. Okkur tókst að halda vinnslunum gangandi alla daga ársins nema tvo vegna óveðurs, enda kallar markaðurinn eftir stöðugu framboði.“

Systurskipin eru að verða átta ára gömul og hafa reynst afskaplega vel, að sögn Kristjáns, „enda var vandað til allra verka við smíði þeirra og viðhald hefur alltaf verið með ágætum. Síðast en ekki síst eru skipin vel mönnuð, valinn maður er í hverju plássi á öllum skipum félagsins,“ segir Kristján Vilhelmsson.