Fara í efni
Þór

Fyrsti heimaleikur Þórs fer fram í kvöld

Oddur Gretarsson er kominn heim í Þór eftir 11 ár sem atvinnumaður í Þýskalandi.

Fyrsti heimaleikur karlaliðs Þórs í handbolta í vetur er á dagskrá í kvöld. Þórsarar voru hársbreidd frá því að komast upp í efstu deild í vor en leika áfram í þeirri næst efstu, Grill 66 deildinni. Það er B-lið Vals (Valur 2) sem kemur í heimsókn og flautað verður til leiks í Íþróttahöllinni kl. 18.00.

Sumarið var viðburðarríkt hjá Þórsurum því gamlir liðsmenn hafa snúið aftur heim og samið var á ný við lykilleikmenn. Búist er við Þórsurum mjög öflugum í vetur og spáðu þjálfarar og forráðamenn liðanna í deildinni Þórsurum efsta sætinu. 

Höllin verður opnuð kl. 17.30 í dag og í tilkynningu frá handknattleiksdeild Þórs kemur fram að ársmiðar verða til sölu, svo og veitingar að vanda.

Einni umferð er lokið í Grill 66 deildinni. Þórsarar töpuðu með eins marks mun fyrir Víkingum í hörkuspennandi viðureign í Reykjavík og Valsmenn unnu lið HBH með sjö marka mun, 34:27, á heimavelli. HBH er nýstofnað lið í Vestmannaeyjum, Handknattleiksbandalag Heimaeyjar.

Komnir til Þórs

  • Bergvin Þór Gíslason frá Aftureldingu
  • Hafþór Már Vignisson frá ØIF Arendal
  • Kristján Gunnþórsson frá KA
  • Leó Friðriksson frá KA
  • Oddur Gretarsson frá Balingen-Weilstetten
  • Ólafur Atli Malmquist Hulduson frá Fjölni
  • Þórður Tandri Ágústsson frá Stjörnunni